Hressir krakkar mættu á fyrstu æfingu Litlu Laffíar fyrir stórtónleika haustsins.
Nú er kórinn að æfa splunkunýtt verk fyrir barnakór, blandaðan kór og strengjasveit sem frumflutt verður í Marmarsalnum á Sentralen í Osló þann 15.nóvember.
Verkið tekur fyrir grænlenska þjóðsögu og íslenska rímu um víkinga á grænlandi.
Krakkarnir voru enga stund að læra grænlenska textann!
Verkið er samið af Stefáni Sand og grænlensku listakonunni Nuka Alice.
Litla Laffí flytur þetta með Söngflokknum Laffí, Stúdentasveitinni STRYK og Mótettukórnum sem kemur frá Íslandi.
Næsta æfing er sunnudaginn 27.september í Ólafíustofu kl 12:00 og það er ekki of seint að vera með!
Æfingum stjórna kórstjóri og tónlistarkennari Rebekka Ingibjartsdóttir og óperusöngvari Einar Stefánsson.
