Hjá kirkjunni starfar menningarfulltrúi í sem hefur umsjón með öllum menningar-, lista- og þjóðlegum viðburðum á vegum kirkjunnar. Einnig sér hann um stefnumótun menningarstarfs og eflingu samstarfs við aðra aðila á sviði menningar og lista ásamt við að halda skrá yfir íslenskt listafólk búsett í Noregi.
Menningar og listastarf er samofið kirkjustarfinu og þaðð er stefna kirkjunnar að efla íslenska tungu og menningu í breiðum skilningi meðal Íslendinga í Noregi og stuðla að listflutningi íslensks efnis s.s. tónlistar og leiklistar. Þá er kirkjunni einnig mikilvægt að styðja við félagslíf Íslendinga í Noregi á menningarlegum grundvelli og að eiga gott samstarf við Íslendingafélögin um land allt.
Kirkjan hefur það sem skýra stefnu að greiða öllu listafólki fyrir vinnu sína og þá hafa einnig verið gerðir samstarfssamningar við alla íslensku kórana sem starfræktir eru.
Pálína Ósk Hraundal er menningarfulltrúi Íslensku kirkjunnar í Noregi
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að syngja í íslenskum kór eða stofna íslenskan kór að hafa samband á palina@kirkjan.no.
Einnig hvetjum við listafólk og aðra sem starfa og/eða hafa áhuga á að starfa með okkur að því að því að efla íslenska tungu og menningu að hafa samband.