STARFSFÓLK OG STJÓRN

Starfsfólk kirkjunnar.

Hjá Íslensku kirkjunni starfa fjórir í föstu starfi, sóknarprestur, skrifstofustjóri og menningarfulltrúi í hundrað prósent starfi og æskulýðsfulltrúi í hlutastarfi.

Einnig starfa mörg í verkefnatengdri vinnu, svo sem við sunnudagaskóla, barna- og ungmennastarf og önnur tilfallandi verkefni.

Stjórn Íslensku kirkjunnar í Noregi 2025-2026

úr lögum safnarins...

Stjórn safnaðarins er ásamt sóknarpresti í fyrirsvari fyrir söfnuðinn gagnvart stjórnvöldum,stofnunum og einstaklingum. Hún hefur umsjón með eignum safnaðarins og fjárhag.

Stjórn kirkjunnar annast rekstur og framkvæmdir á vegum safnaðarins og styður kirkjulegt starf í söfnuðinum ásamt prestum og starfsmönnum kirkjunnar.

Stjórnarmenn skulu kosnir til fjögurra ára í senn og skulu þeir koma úr röðum safnaðarmeðlima. Stjórn skiptir með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund. Formaður skal boða til funda.

Stjórnarmenn eru fimm. Til vara skulu vera þrír einstaklingar og taka þeir sæti í forföllum stjórnarmanna eftir þeirri röð sem þeir voru kosnir í. Heimilt er safnaðarstjórn að kveða varamenn sér til liðsinnis þegar hún telur ástæðu til.

Safnaðarstjórn tekur mið af starfsreglum Íslensku Þjóðkirkjunnar.

Safnaðarstjórn starfar einnig eftir siðareglum sem hún setur sér.

Fyrir stjórnarfundi og aðra vinnu þiggur safnaðarstjórn og varamenn þóknun sem samþykkt skal af aðalfundi. Þóknun til stjórnar fylgir almennri launavísitölu.

 

Núverandi stjórn Íslensku kirkjunnar í Noregi.

Powered by Cornerstone