Aðalfundur í Bøler kirkju 16. Apríl 2023
Einnig sendur út á ZOOM.
1. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla formanns
4. Skýrsla stjórnar
5. Skýrsla sóknarprests
6. Fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram
7. Kosning í safnaðarstjórn og varastjórn
8. Tillögur
9. Kosning í kjörnefnd og aðrar nefndir
10. Önnur mál
1. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað
Elín Soffía formaður safnaðarstjórnar kannar hvort einhver athugasemdir berist. Engar athugasemdir við boðun aðalfundar.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara:
Fundarstjóri kynntur og samþykktur af aðalfundi; Valdimar Örn Pálsson.
Fundarritarar samþykktir af aðalfundi; Jónína Margrét Arnórsdóttir og Björn Hallbeck
Fundarstjóri tekur til orða og setur tvo tíma tíl fundarins. Óskar eftir góðum og hnitmiðuðum umræðum. Biður alla um að allir kynni sig áður en tekið sé til máls í pontu.
Tekið er fram að fundurinn sé einnig í beinni útsendingu.
3. Skýrsla formanns og stjórnar
Árið 2022 heilsaði okkur með bjartsýni og fögrum fyrirheitum um að Covid heyrði senn sögunni til og að starfið gæti komist í fullan gang. Það var tilhlökkun hjá starfsfólki og stjórn og mikill hugur og framkvæmdagleði. Það kom því sem mikið reiðarslag í lok janúar þegar upp komst um alvarleg svik þáverandi gjaldkera gagnvart kirkjunni okkar. Umfangið var það stórt og mikið að það hefur markað störf okkar meirihluta árs. Þörf var á stöðugum samskiptum stjórnar og starfsfólks, og auk fastra stjórnarfunda voru um tíma haldnir reglulegir vinnufundir, fundir með lögfræðingum og óteljandi símafundir. Þörf var á sálrænum stuðningi og faglegri ráðgjöf, og kom sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur í heimsókn yfir vinnuhelgi sem lauk með opnum upplýsingafundi í Bøler kirkju (í apríl). Stjórn gerði grein fyrir málinu á þeim upplýsingafundi, á aðalfundi og aukaaðalfundi. Í dag er málið alfarið í höndum lögreglu sem nú telur rannsókn málsins á lokametrum.
Mál norrænu safnaðanna gegn norska ríkinu vegna niðurfellingar á meðlimagjöldum var tekið fyrir í Tingretten á haustdögum og í Lagmannsretten nú í byrjun mars, og voru sóknarprestur auk varaformanns fulltrúar íslensku kirkjunnar við réttarhöldin. Það er skemmst frá því að
segja að ríkið vann málið á báðum dómsstigum. Það er mat lögfróðra að réttur norrænu safnaðanna sé ótvíræður, og er nú verið kanna hvort áfrýja eigi málinu til Hæstaréttar.
Um gjafsókn er að ræða, þannig að kostnaður kirkjunnar við málaferlin er í algjöru lágmarki.
Skráðir meðlimir Íslensku Kirkjunnar í Noregi voru um 7500 árið 2022, en norsk yfirvöld greiddu sóknargjöld fyrir rétt tæplega 6000. Það er mikilvægt að allir leggist á eitt og kynni starf kirkjunnar meðal Íslendinga í Noregi, og einnig annarra. Aðild að kirkjunni tryggir rekstrargrundvöll og framtíð blómlegs menningar- og félagsstarfs og gerir kirkjunni kleift að sinna margvíslegum stuðningi og sáluhjálp.
Starfsfólk kirkjunnar er burðarbitinn í starfinu gagnvart meðlimum, og kirkjan er svo heppin að hafa einstakar manneskjur sem vinna af alúð og fagmennsku. Því miður kom í ljós á liðnu ári að launamál hafa ekki verið í lagi og laun hvorki fylgt launavísitölu né þeim töxtum sem starfsfólk ætti að vinna eftir. Mikil vinna var því lögð í að uppfæra starfssamninga og leiðrétta bæði starfshlutföll og laun.
Árið 2022 voru auk sóknarprests 4 fastir starfsmenn í misstórum starfshlutföllum. Það er stefna stjórnar að hlúa vel að starfsfólki og gera það eftirsóttan og ákjósanlegan kost að starfa fyrir Íslensku Kirkjuna í Noregi.
Á aðalfundi 2022 reyndist ekki unnt að klára öll mál sem lögð höfðu verið fyrir fundinn, og því var nauðsynlegt að halda aukaaðalfund á haustdögum. Þar kom meðal annars fram athugasemd við þóknun til stjórnar vegna fundarsetu, og er rétt að gera grein fyrir þeim hér.
Fyrir stjórnarfundi eru greiddar 1800 krónur. Vinnufundir greiðast eftir fjölda klukkustunda og er taxtinn 250 krónur á tímann. Formaður og gjaldkeri fá hvor um sig 100 tíma greidda á ári fyrir þeirra vinnu. Verði stjórnarmeðlimur fyrir vinnutapi vegna starfa sinna í þágu kirkjunnar greiðir kirkjan fyrir það tap. Allar slíkar greiðslur eru teknar fyrir á stjórnarfundum og bornar upp til samþykkta. Allar greiðslur eru skattskyldar. Ferðakostnaður er greiddur af kirkjunni.
Það er markmið sitjandi stjórnar að sýna ráðdeild og hagsýni, og kostnaði vegna funda og ferðalaga stillt í hóf eftir fremsta megni.
Íslenska Kirkjan í Noregi er nú fullgildur meðlimur í Norges Kristne Råd (NKR) og nýtur með því virks samstarfs og samtals við fjölda annarra kristinna söfnuði í Noregi. Fulltrúar hafa atkvæðarétt á aðalfundi NKR.
Undanfarið ár hefur stjórn leitað ráðgjafar til NKR um ýmis mál er varða rekstur kirkjunnar, og hefur nú, samkvæmt ráðleggingum NKR, gert samning við nýtt bókhaldsfyrirtæki og nýjan endurskoðanda. Sú framkvæmd var samþykkt á aukaaðalfundi kirkjunnar þann 18. september s.l.
Það er ánægjulegt að finna fyrir umhyggju safnaðarmeðlima gagnvart kirkjunni okkar, og einstakt að finna vináttu og kærleik þess fjölda fólks sem hefur samband við stjórnarmeðlimi og starfsfólk, fólk sem hefur skoðun á starfinu og vill láta gott af sér leiða. Ólafíustofa er miðstöð kirkjunnar okkar og aðalbækistöðvar, en kirkjan þjónar öllum Íslendingum i Noregi og öllum þeim sem til hennar leita og óska eftir þjónustu og liðveislu. Kirkjan er fólkið sem hana skipa og starfið mótast af þeim.
Stjórn er stolt af blómlegu starfi sem starfsfólk og sjálfboðaliðar halda uppi, og það er gleðilegt að fylgjast með uppbyggingu um land allt. Þrátt fyrir miklar áskoranir og krefjandi verkefni hefur samstillt stjórn tekið á hverju máli af heilindum og með opnum hug og leitast við að vinna úr og leysa hvert verkefni kirkjunni okkar til hagsbóta og blessunar.
Hjörleifur sgur aur í pontu og bær því við að starf síðasta árs hafi mikið litast af uppákomu fyrri gjaldkera. Stórt og mikið verk var unnið af skrifstofustjóra, pres og formanni. Margir vinnufundir voru haldnir fyrstu mánuðina í tengslum við máið og samstaðan góð.
Í söfnuðinum koma að margir leiðtogar, tónlistarfólk, kórar og annað og í þessa liði hefur farið mikið af ármagni safnaðarins.
4. Skýrsla sóknarprests
Kynning
Þegar ég lít yfir árið 2022 fyllist ég gríðarlegu stolti og þakklæti. Ég er stolt af uppbyggingunni, af fjölbreytninni, stolt af lífinu í kirkjunni okkar í Noregi sem nú spírar, sprettur og blómstrar á fallega kirkjuenginu okkar. Ég er gríðarlega stolt af metnaðarfullri dagskrá, hugrökkum nýjungum í kirkjustarfi, og þakklát fyrir að kirkjan okkar stendur fyrir innihaldsríkum, mannbætandi og gefandi stundum. Ég er stolt og þakklát þrátt fyrir allt. Ég segi þrátt fyrir allt því í upphafi árs kom upp þungbært mál sem var reiðarslag fyrir söfnuðinn okkar, fyrir stjórn, starfsfólk og alla sem bera hag íslensku kirkjunnar í Noregi fyrir brjósti, en með elju, þrautseigju og samvinnu náðum við, þrátt fyrir allt, að efla starf kirkjunnar okkar svo um munar á sama tíma og við tókumst á við áfallið og unnum úr óreiðunni sem var skilin eftir.
Mikill einhugur hefur verið meðal starfsfólks og stjórnar að gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa vörð um safnaðarstarfið og hina lifandi kirkju. Starfsumhverfið árið 2023 var flókið og tók sinn toll af líkamlegri og andlegri orku, en þegar litið er yfir farinn veg er ég fyrst og fremst gríðarlega stolt af úthaldinu og árangrinum sem við höfum náð á liðnu ári. Stolt og þakklát fyrir allt sem hefur farið vel, fyrir gott teymi sem hefur lagt mikið á sig í flóknum og þungbærum aðstæðum, fyrir góðan stuðning bæði frá kirkjunni á Íslandi, og frá Norges Kristne Råd, en síðast en ekki síst er ég þakklát fyrir allt fólkið sem hefur leitað til okkar, treyst okkur fyrir bæði stórum stundum í lífi þess og góðum stundum í hversdagslífinu. Það er lifandi kirkja.
Starfsfólk kirkjunnar árið 2022
Kjarnateymi kirkjunnar er skipað sóknarprestinum sr Ingu Harðardóttur (undirrituð), Berglindi Gunnarsdóttur skrifstofustjóra, Pálínu Ósk Hraundal menningarfulltrúa og Rebekku Ingibjartsdóttur æskulýðsfulltrúa.
Þetta er teymið sem starfar daglega við skipulag, undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu allra þeirra fjölbreyttu verkefna sem kirkjustarfið felur í sér. Áhersla er lögð á teymishugsun með áherslu á að nýta hæfileika og styrkleika teymisins sem best. Markmið teymisins er að nálgast öll verkefni með kærleika, opnum huga, gleði og fagmennsku.
Starfsmannafundir teymisins eru alla þriðjudaga kl 10. Árið 2022 voru einnig vikulegir fundir með formanni sóknarnefndarinnar til að tryggja gott upplýsingaflæði á óvissutímum.
Breytingar urðu á ábyrgðarhlutum hvers og eins í teyminu þegar fyrrverandi gjaldkeri hvarf frá störfum. Og nú hafa prestur og skrifstofustjóri tekið yfir umsjón með daglegum rekstri.
Annað starfsfólk sem er ýmist í föstum verkefnum eða tekur að sér tilfallandi verkefni eru
Elísabet Steingrímsdóttir sem sér um þrif í Ólafíustofu og Einar Tryggvi Traustason sem tekur að sér minni viðhaldsverkefni sem þarf að sinna í Ólafíustofu og prestsbústaðnum.
Margrét Ólöf Magnúsdóttir og Benedikt Grétar sjá um starfið í Kristiansand og Sandefjord, auk Söru Ólafsdóttur. Aðrir leiðtogar og ungleiðtogar sem unnu á ungmennahittingum og sunnudagaskóla, ungmennahelgi í Norefjell, fermingarnámskeiðum, leiðtogafræðslu og útilegufjöri eru Agnes Líf Ásmundsdóttir, Birgir Steinn Ásmundsson, Guðjón Andri Reynisson Rabbevåg, Illugi Davíð Hjörleifsson, Júlí Hjaltadóttir, Kristjana Vera Mjallardóttir og Natalía Rán.
Stjórn kirkjunnar 2022-2023
Elín Soffía Pilkington, formaður, Hjörleifur Valsson, varaformaður, Katla Sveinbjörnsdóttir, gjaldkeri, Björn Hallbeck, ritari og Guðjón Andri Rabbevåg Reynisson, meðstjórnandi.
Varamenn voru Guðrún Elín Svansdóttir, Eyjólfur Magnússon, Þuríður Drífa Sigurðardóttir, Kolbrún Rut Ragnarsdóttir. Eyjólfur og Guðrún Elín hafa lokið störfum fyrir stjórnina og er eitt laust sæti í varastjórn.
Guðsþjónustur og helgihald
Alls voru haldnar 32 messur og fjölskylduguðsþjónustur á vegum íslensku kirkjunnar árið 2022.
Janúar fór rólega af stað með kóvidlokunum og bæði messa, skírn og samráðshelgi féll niður.
Í febrúar féll messan í Ósló niður en að öðru leyti gekk vel að koma helgihaldi og öllu starfi kirkjunnar af stað eftir að heimfaraldrinum var opinberlega lokið. Messur í Ósló fóru fram í Sænsku Margaretakirkjunni, Bøler kirkju, Norberg kirkju og úti hjá kirkjurústunum í Maridalen.
Í Bergen hefur Skjold kirkja verið samstarfsaðili til margra ára, eins Bakke kirkja í Þrándheimi, Hellemyr kirkja í Kristiansand og Sandar kirkja í Sandefjord. Í Stavanger vorum við í fyrsta skipti í Madlamark kirkju með jólaguðsþjónustuna og jólaballið, sem kom mjög vel út.
Margrét Ólöf Magnúsdóttir djákni á skilið mikið hrós og þakklæti fyrir að hafa haldið úti guðsþjónustum í Sandefjord og Kristiansand um árabil.
Messur og guðsþjónustur safnaðarins eru að jafnaði vel sóttar, þó leggjum við meira upp úr gæðum samverunnar heldur en fjölda sem mæta. Engu að síður gleðjumst við alltaf þegar viðburðir og samverustundir eru fjölmennar, eins og þegar um 400 manns voru á 17. Júní hátíðarhöldunum og vel yfir hundrað manns í upphafsmessu í Ósló í september þegar Mótettukórinn gladdi okkur með söng í og eftir messu.
Ákveðið var að prófa að hafa stutta tónleika eftir upphafsguðsþjónstu með Mótettukórnum og var það góður dagur og dásamleg stund. Einnig á Ólafíuhátíðinni var markaður í safnaðarsal Sænsku kirkjunnar og svo hélt Laffí tónleika á eftir. Á Aðventuhátíðinni var guðsþjónusta og sunnudagaskóli, með þátttöku Ískórsins, barnakórsins Litlu Laffí og hljómsveitarinnar Umbru. Umbra hélt svo tónleika að loknu messukaffinu. Þetta fyrirkomulag hentaði upphafsmessunni og Ólafíuhátíðinni mjög vel, en aðsókn á Aðventuhátíðina var aðeins minni en væntingar stóðu til en dagurinn, tónlistin og samveran engu að síður gefandi og yndisleg.
Fermingarstarf
28 börn sóttu fermingarfræðslu veturinn 2021-22. Níu börn fermdust í þremur athöfnum á okkar vegum, 3 börn í Bølerkirkju og 5 börn í Háteigskirkju og eitt á Akranesi, en hin börnin fermdust í sinni heimabyggð á Íslandi.
Fermingarfræðslan fer fram með mánaðarlegum fundum á netinu og tveimur námskeiðum sem er skyldumæting á. Veturinn 21-22 var farið í Knattholmen að hausti aðeins með norska hópinn en bæði vorferð þess árgangs og haustferð fermingarhópsins 2022-23 var í Åh í Svíþjóð þar sem samstarf íslensku safnaðanna á Norðurlöndunum hefur verið tekið upp að nýju.
28 fermingarbörn er einnig skráð í fræðsluna veturinn 22-23.
Fermingarfræðslan og fermingarferðalögin eru fermingarbörnunum að kostnaðarlausu.
Aðrar kirkjulegar athafnir og kærleiksþjónusta
Skírð voru 6 börn á síðasta ári m.a. í Ósló, Balestrand og Sandefjord.
Tvær hjónavígslur fóru fram á vegum safnaðarins, og ein jarðarför.
Sálgæsla og kærleiksþjónusta var veitt á skrifstofu safnaðarins og með símtölum og skjáfundum. Hjónabandsráðgjöf, sorgarúrvinnsla, einmanaleiki, skilnaður og áföll eru helstu ástæður sálgæslusamtalanna sem bjóðast öllum Íslendingum óháð trúarafstöðu.
Safnaðarstarf
Safnaðarstarfið hefur verið í mikilli uppbyggingu og blóma, þökk sé góðu teymi sem starfar eins og einn maður við skipulagningu, undirbúning og framkvæmd viðburða og samverustunda. Safnaðarstarfið okkar byggir á þeirri grunnhugsun að sinna kærleiksboðun í verki, að nota fjölbreyttar leiðir til að ná til fólks og mynda tengsl.
Áhersla hefur verið á að byggja upp starf á landsbyggðinni og hefur það gengið eftir með auknu starfi á landsbyggðinni, sérstaklega í Stavanger en einnig í Bergen.
Krílakaffi, Gæðastundir, Ungmennahittingar og Handavinnukvöld voru reglulega í Ósló, Stavanger og Sandefjord, auk annarra viðburða eins og bálkvölda, Ólafíuloppu, gönguferða, kleinubaksturs svo eitthvað sé nefnt. Menningarfulltrúi og æskulýðsfulltrúi segja nánar frá því í sínum skýrslum.
Aðventuhátíð var haldin í Sænsku kirkjunni með þátttöku þjóðlagasveitarinnar Umbru. Guðþjónusta og sunnudagaskóli með þátttöku Ískórsins, Litlu Laffí og Umbru var kl 15, svo kirkjukaffi og tónleikar Umbru kl 16.30. Mikil upplifun, tónleikar af hæsta gæðaflokki. Mannskæð hálka var í Ósló þennan dag og mæting nokkuð dræmari en vonir stóðu til. Einnig var mikið um að fjölskyldur kæmust ekki vegna áreksturs við juletretenning í hverfunum. Skoðum það fyrir næsta ár.
Ólafíuhátíð var gríðarlega vel heppnuð með handverksmarkaði sem stóð yfir í frá hádegi í safnaaðarsal Sænsku kirkjunnar og allt þar til tónleikar Laffí byrjuðu. Mörg hundruð manns mættu á handverksmarkaðinn og gríðarlega mörg ný andlit tóku þátt í deginum. Íslenskt sælgæti, heimaprjón, hunang, glermunir, myndlist, og hlaðið kaffihlaðborð til styrktar Ólafíusjóði, allt gerði markaðsstemmninguna sterka og góða. Pálína Ósk á heiðurinn af því hversu vel tókst til með góðum undirbúningi og skipulagningu. Tónleikar Laffí voru vel sóttir og margir sem nutu þar yndislegrar tónlistar en þau fluttu prógramm tileinkað Halldóri Laxness. Rebekka Ingibjartsdóttir stjórnaði.
Upplýsingamiðlun
Lagt er kapp á að heimasíðan kirkjan.no sé uppfærð og gefi góða mynd af dagskrá kirkjunnar. Sýnileiki safnaðarins er orðin mun meiri á samfélagsmiðlum og eru allir viðburðir settir á Facebook, og auglýstir þar og á instagram. Lifandi frásagnir úr lífi safnaðarins birtast líka í story á þessum miðlum auk þess sem æskulýðshóparnir fá upplýsingar á snapschat. Við leggjum okkur fram um að fara eftir persónuverndarlögum varðandi myndbirtingar og er venjan að fá leyfi, skriflegt eða munnlegt frá forráðafólki áður en myndir eru birtar.
Meðlimaskrá
Íslenska kirkjan í Noregi er loksins komin með gott kerfi til að halda utan um meðlimaskrána.
Eftir nokkurra ára vinnu við breytingar á kerfi og breyttum vinnuferlum erum við að ná betri tökum á að halda meðlimaskránni réttri og uppfæra hana reglulega.
2022 fengum við greitt fyrir 5772 meðlimi.
Þann 31. desember 2022 voru um 7500 skráðir í meðlimaskrána okkar en unnið er að því að uppfæra hana því það er alltaf ákveðinn fjöldi sem hefur flutt til Íslands á árinu auk þess það eru alltaf nokkuð um tvískráningar.
Samstarfsaðilar
Prestur, starfsfólk og stjórn safnaðarins hefur lagt sig eftir samstarfi á flestum þeim sviðum er varða málefni Íslendinga og taka fagnandi á móti þeim sem vilja eiga samstarf við söfnuðinn.
Biskupsstofa og sr Helga Soffía Konráðsdóttir, prófastur, eru bakhjarlar okkar á Íslandi. Þangað leituðum við eftir stuðningi, handleiðslu og góðum ráðum þegar fjársvikamálið kom upp. Við þökkum sr Helgu Soffíu Konráðsdóttir prófasti og sr. Örnu Grétarsdóttur sérstaklega fyrir þeirra stuðning á síðasta ári.
Rætur Íslenska safnaðarins liggja hjá þjóðkirkju Íslands þó okkar sérstaða sé að vera kirkja meðal Íslendinga erlendis, og það er gott að finna stuðninginn í verki þegar raunverulega þörf er á honum. Við eigum dýrmætt samstarf við Íslendinga og Íslendingafélögin um landið allt sem er stöðugt að styrkjast. Einnig er ómetanlegt eiga íslensku kórana og stjórnendur þeirra að víða um land. Ískórinn, sönghópurinn Laffí, Kór Kjartans í Þrándheimi og Sönghópurinn Björgvin í Bergen eru allt dýrmætir og traustir samstarfsaðilar.
Prestur hefur getað leitað til sendiherra og starfsfólksins á sendiráðsskrifstofunni með hvaðeina sem kemur upp á. Sú samvinna og stuðningur sem þaðan kemur er mjög mikilvæg.
Samstarf við Íslensku söfnuðina í Svíþjóð og Danmörku hefur verið endurvakið. Það er gott að eiga svo góða samstarfsfélaga að í nágrannalöndunum. Samráðshelgin í janúar féll niður en lítill undirbúningsfundur fyrir fermingarmótin var haldinn í Gautaborg í september.
NKR eru samtök sem hafa stutt dyggilega við dómsmálið sem íslenski söfnuðurinn, sænska kirkjan og finnska kirkjan standa saman að um þessar mundir gegn norska ríkinu. Undirrituð situr í stjórn eftir að kirkjan okkar gerðist fullgildur meðlimur í samtökunum.
Lokaorð
Árið 2022 var krefjandi ár sem reyndi á úthald og samheldni. Þrátt fyrir stórt áfall í upphafi árs, hefur teyminu, starfsfólki, stjórn og velunnurum kirkjunnar okkar, tekist að komast í gegnum þetta ár með miklum sóma. Verkferlum í stjórnun og rekstri hefur verið breytt til batnaðar á sama tíma sem ekkert hefur verið slegið af á kirkjulega akrinum. Þar hefur verið unnið ötullega
að því að næra og vökva kirkjulífið með gleði og umhyggju og uppskeran er eftir því – blómstrandi kirkjulíf um allan Noreg. Því er ég stolt og þakklát fyrir árið 2022.
Ég bið Guð að blessa Íslenska söfnuðinn í Noregi, blessa þau sem starfa í nafni hans, þau sem þiggja þjónustu hans og þau sem taka þátt í því lifandi samfélagi sem söfnuðurinn vill vera.
5. Skýrsla menningarfulltrúa vorið 2023
Menningarstarf Íslensku kirkjunnar í Noregi er fjölbreytt, áræðið og skapandi með djúpar rætur í þjóðmenningu, sögu og list. Áherslur menningarstarfsins er að auðga og rækta íslenskt samfélag í Noregi með fjölbreytu framboði menningarviðburða. Við leggjum áherslu á það að vera með sterka samfélagslega tengingu við Íslendinga um allan Noreg og með þeim hæ fóstra og næra menningarstarf kirkjunnar. Kirkjan leggur sig fram við að styrkja starfsemi íslenskra kóra starfandi í Noregi og íslendingafélag-anna víðsvegar um landið með bæði árlegum starfsstyrkjum og greiðslum sem er ætlað að styrkja þeirra starf og framlag til menningararfsins. Einnig hefur kirkjan veit ríflegan styrk til viðhalds og endurbóta á Norefjellhúsinu okkar allra sem Íslendingafélagið í Ósló á og rekur með myndarbrag. Íslenska kirkjan gegnir því hlutverki í Noregi að vera þungamiðja menningarstarfs Íslendinga í landinu og því ábyrgð okkar mikil sem við tökum alvarlega. Við hvetjum grasrótina til dáða og reynum eftir bestu getu að vekja athygli á ungu listafólki sem er nýflut til Noregs.
Fyrsti mánuður ársins var litaður af Covid og héldum við áfram því vandaða starfi sem boðið var upp á allt Covid tímabilið. Reynslunni ríkari. Við lærðum mikið á Covid tímabilinu og þau tækifæri höfum við nýtt okkur og ákveðið að halda áfram að vinna með. Við héldum t.d. áfram að þjónusta allt landið með fyrirlestrum á Zoom. Frábær möguleiki til þess að auka við annars góða þjónustu við landsbyggðina. Netviðburðirnir hjá okkur eru nokkuð vel sóttir og stefnan tekin á að halda áfram að bjóða upp á þennan möguleika.
Þjóðmenning, tónleikar, kórastarf, hátíðarhöld í kringum 17. júní, íslensk tunga, bókmenntir, handavinna, gönguferðir, umhverfisvænir viðburðir eins og Ólafíuloppan og barnabókadagarnir, handavinnumarkaðurinn og netyrirlestrar hafa verið áberandi í menningarstarfinu árið 2022-2023. Við höfum upplifað mjög góða mætingu á viðburðina allt frá 5-400 manns á hverjum viðburði. Áherslan á uppbyggingu á landsbyggðinni hefur haldið áfram og gengur vel.
Staðir sem hafa voru í uppbyggingu árið 2022:
Stavanger
Það hefur mikil uppbygging át sér stað í Stavanger og er starfið þar núna orðið meira sjálfstæt en áður. Arnheiður Guðmundsdóttir og Svandís Fjóla hafa verið ráðnar inn sem leiðtogar og taka við boltanum í barna og ungmennastarfi sem hefur verið virkilega vel sót þar. Íslendingafélagið hefur einnig verið í mjög góðu samstarfi við okkur og hjálpað mikið til við undirbúning viðburða. Tengslanet í miklum vexti sem skilar sér vel bæði í samstarfi og við að kynna viðburði.
Bergen
Vel var mæt á jólahátíð í desember Sönghópurinn Björgvin hefur verið okkur mikið innan handar við aðstoð viðburða og staðið ótrúlega vel. Það ríkir góður andi í Bergen og mikill
grundvöllur fyrir uppbyggingu. Ekkert Íslendingafélag er í Bergen en Sönghópurinn hefur
Þrándheim
Viðburðir hafa verið fámennir í Þrándheimi en góður andi fyrir uppbyggingu. Kór Kjartans hefur aðstoðað okkur ásamt því að syngja í messum og kórmeðlimir öflugir að mæta á viðburði. Einnig er Íslendingafélag á staðnum sem við höfum át í góðu samstarfi við og verður vonandi áfram.
Ósló
Mikill uppbygging á sér stað. Vel mæt á viðburði og við sjáum markaðstengda vinnu vera skila sér í þáttökuölda á ólíkum viðburðum.
Sandefjord
Minni mætng á viðburði. Áfangastaður sem hefur aðeins hallað undan fæti undanfarið. Vantar Íslendingafélag. Mikil vinna í gangi núna til þess að fá áfangastaðinn aftur í gang og á sama stað og áður. Margrét Ólöf og Grétar eru fasr starfsmenn sem sjá um Sandefjord og nágrenni.
Kristiansand
Öflugt Íslendingafélag sem hefur aðstoðað okkur við viðburði. Þáttaka lítil en stefnumótun í gangi hvernig hægt er að styðja betur við þennan áfangastað.
Stefnan er tekin á að halda uppbyggingu áfram á þessum svæðum og bæta við fleiri stöðum á kirkjukortið. Við erum t.d. byrjuð að vinna ákveðna grunnvinna að því að bæta Norður- Noregi við og nú þegar komin með dagsetningar fyrir viðburði árið 2023 þar. Samstarf við Íslendingafélögin hefur verið got og regluleg símtöl og markviss vinna með félögunum að samvinnu fyrir messur og aðra viðburði. Stefna okkar eru því að halda ótrauð áfram þeirri vinnu að ná til sem flestra áfangastaða með góðum kynningum, jákvæðri ímynd safnaðarins og fjölbreytu úrvali af menningarviðburðum.
Stórir menningarviðburðir tókust vel til með margvíslegum nýjungum eins og Ólafíuhátíðin, sem að þessu sinni var haldin með tónleikum sönghópsins Laffí undir yfirskriftinni -Hún var það allt, þar sem flut voru lög við texta Halldórs Laxness, ásamt því að halda glæsilegen handverksmarkaði og skapa notalega kaffihúsastemningu fyrir tónleikana í hliðarsal kirkjunnar þar sem hundruðir runnu í gegn og gátu verslað handverk, hönnun og mat af samlöndum sínum sem höfðu upp á margt spennandi að bjóða.
Aðventuhátíðin var á sínum stað í upphafi aðventu, með guðþjónustu og sunnudagaskóla með þáttöku Ískórsins, barnakórsins Litlu Laffí og hljómsveitarinnar Umbru. Eftir messukaffið þar sem veisluborðið svignaði undan hnallþórunum, hélt Umbra svo frábæra tónleika þar sem þjóðlagatónar fengu að leika um sali sænsku Margaretakirkjunnar.
Aðsókn á Aðventuhátíðina var aðeins minni en væntingar stóðu til en dagurinn, tónlistin og samveran engu að síður gefandi og yndisleg.
17. júní hátíðarhöldin voru haldin víðsvegar um landið og styrkir frá kirkjunni veitir Íslendinga-félögunum í Ósló, Stavanger, Krisansand og Þrándheim til þeirra. En þess má geta að yfir 400 manns mætu á 17. Júní hátíðina í Nordberg kirkju þar sem fara saman guðsþjónusta og hátíðarhöld fyrir utan á eftir með lúðrasveit, skrúðgöngu, hoppukastala og íslenskum pylsum.
komið sterkur inn sem okkar samstarfsaðili á svæðinu.
Yfirlit viðburða árið 2022.Fyrirlestrar á Zoom, netyrirlestrar sem allir geta sót óháð búsetu voru:10 leiðir til betra lífs – Sr. Þórhallur Heimisson ræddi hvernig við getum bæt líðan okkar og fundið nýjar leiðir til að lifa lífinu lifandi og til að vera hamingjusöm. Sálarlist með Kristínu Bertu, sem fjallaði um sálarlist og þegar listsköpun er notuð til þess að efla sköpunarkraftinn, auka sjálfþekkingu, setja niður ásetning fyrir lífið, takast á við streitu og næra hjarta og sál. Fyrirlestur með Röggu Nagla sálfræðing um það hvernig við getum styrkt grunnstoðir góðrar heilsu og mikilvægi þeirra til að koma í veg fyrir og stjórna streitu. Einnig voru haldin Handavinnukvöld á Zoom ásamt því að vera í Ólafíustofu - en þetta eru vel sóttar og notalegar kvöldstundir bæði heima í Ólafíustofu.
Tónleikar
Tónleikar sem höfum haldið eða styrkt á margvíslegan hátt. „Stundarrómur í Ósló“ -ungt tónlistarfólk frá Íslandi og Noregi, hluti af tónleikaröð. „Hún var það allt“, Halldór Laxness– Tónleikar með Laffí á Ólafíuhátíðinni, „Norðfólk“ - Þjóðlagatónlist í flutningi þjóðlagadúóins Norðfólk þar sem íslensk og norsk þjóðlög voru flut með leikrænum tilþrifum, epískum söguþræði og listfenglegum tónlistarflutningi. 3 tónleikar í Noregi - Ósló, Bergen og Þrándheim. Tónleikar með Umbru á Aðventuhátíðinni. Jólatónleikar með “Storm „ - Stormur er hópur núverandi og fyrrum tónlistarnema í Ósló sem tóku sig saman og héldu líflega jólatónleika. Hátíðartónleikar með „Mótettukórnum“ í tengslum við upphafsmessu haustsins. Dásamleg stund með virkilega flottum kór undir stjórn Harðar Áskelssonar. 17.júní hátíðarhöld voru í Ósló, Stavanger, Kristiansand og Þrándheim.
Gönguferðir
Boðið var upp á stutar og langar vegalengdir til þess að auka framboðið og koma til móts við sem flesta. Sem dæmi má nefna gönguferð að Skjennungstua sem var 20 km og ljúfar göngur með hugleiðslu að Ullevålseter, og Fuglemyrhyta sem eru talsvert styttri leiðir. Bænabál - Núvitund og notalegheit við bálið með hugleiðingu og/eða söng.
Fjölskyldu og útivistardagar
Fjölbreytar samkomur þar sem við brjótum upp hefðbundið sunnudagaskólaform og eigum saman góða stund úti með söng, sögu, leikjum, ferðum á ströndina, kveikjum bál í skóginum eða förum á skauta svo eithvað sé nefnt. Þessi viðburðir hafa gefist vel og verið vel sóttir í Ósló, Þrándheim, Bergen og Stavanger
Gæðastundir
Gæðastundir er góður hópur á öllum aldri sem hist einu sinni í mánuði í Ólafíustofu á dagtíma. Hangikjötsveisla var haldin í upphafi árs þegar búið var að aflétta samkomubanni og aftur í desember á hefðbundnum tíma. Í upphafi sumars var hópnum boðið á pallinn í prestbústaðnum í grillveislu og í haust var einnig farið var í stórkostlega haustferð til Oscarsborg og var mjög góð mæting og virkilega góð stemning í ferðinni. Útilegufjör í Rokosjøen fyrir alla fjölskylduna er orðið árlegur viðburður og var svipað góð mæting og árið áður. Helgin gekk mjög vel fyrir sig og ríkti líflegur og mjög jákvæður andi yfir helginni.
Jólahátíðir voru á sínum stað enda komin sterk hefð fyrir þeim með jólaguðsþjónustu, jólaballi, jólatónlist og síðast en ekki síst jólasveinum. Að þessu sinni fórum við til Bergen, Stavanger, Sandefjord, Kristiansand, Þrándheim og svo var að sjálfsögðu jólahátíð á annan í jólum í Ósló.
Aðrir viðburðir
Ólafíuloppan – skiptimarkaður í Ólafíustofu með barnafatnað þar sem fólk gat komið með og fengið barnaföt.
Íslenskir barnabókadagar – sem einnig var skiptimarkaður með bækur.
Tónlistarsmiðja í Ólafíustofu og í skóginu undir stjórn Rebekku.
Morgunkaffið á Zoom - sem hélt áfram í stutta stund eftir Covid en hætti svo.
Páskabrall - föndur, leikur og páskafræðsla og fjör.
Jólaföndur og jólakósý fór á flakk um landið.
Aðventukransagerð í Ólaustofu í tengslum við handavinnuhitting.
6. Skýrsla æskulýðsfulltrúa.
2022 var árið sem æskulýðsstarfið fékk loksins að blómstra aftur eftir heimsfaraldur. Við blésum lífi í starfið bæði í Osló og á landsbyggðinni. Lögð var sérstök áhersla á að byggja upp starfið í Stavanger og fóru æskulýðsfulltrúi og leiðtogar með lifandi og fjölbreytta barna og ungmennadagskrá til Stavanger 6 sinnum á árinu. Mætingin í bæði barna og ungmennastarfið hefur verið einstaklega góð í Stavanger og tenging kirkjunnar þangað styrkist jafnt og þétt. Við höfum einnig hafið uppbyggingu á starfi í Bergen og var haldin þar útivistardagur og ungmennahittingur á haustönninni sem gafst mjög vel og við erum spennt að halda áfram uppbyggingu þar í samstarfi við heimafólk á þessu ári.
Æskulýðsstarfið í Kristiansand og Sandefjord var líkt og verið hefur síðustu 10 ár í tryggri umsjá Margrétar Ólafar og Grétars, sem halda utan um barna og ungmennastarf á hvorum stað í hverjum mánuði. Ungmenni í Osló hitast að vanda annan hvern föstudag og var engin undantekning þar á, þó hefur hópurinn rýrnað eithvað eftir tíðar lokanir sem einkenndu starfið í heimsfaraldri. Við höldum þó ótrauð áfram og vonum að fleiri ungmenni taki þát í starfinu á nýrri önn.
Barnastarfið í Osló og nágrenni hefur verið fjölbreytt og í um það bil hverjum mánuði hafa æskulýðsfulltrúi ásamt leiðtogum haldið utan um margskonar sunnudagaskóla bæði innandyra og utan, við hlið messu, í messu eða sem einstakur viðburður í páskabralli í Ólafíustofu, á skautum á Sognsvann og með grillveislu í skóginum. Við prófuðum líka ýmislegt nýtt og meðal annars fór hópur leiðtoga tvisvar til Fredrikstad með dagskrá fyrir börn og ungmenni og Rebekka bauð upp á lifandi og ferskar tónlistarsmiðjur á mánudagseftirmiðdögum nokkrum sinnum.
Í maí fóru 15 hress ungmenni í Íslendingahúsið í Norefjell yfir helgi og átu got samfélag. Þar var haldið glitrandi júróvisionpartý og fáránleikakeppni, keppt var í rúsínuspýtingum, sippi, húshlaupi og fleiru fáránlegu.
Útilegan um verslunarmannahelgina gekk vel að vanda. Starfsfólk kirkjunnar og leiðtogar sáu um fjölbreyta dagskrá þar sem börn, ungmenni og fullorðna fólkið fékk að njóta sín.
Barnakórinn Litla Laffí var færður undir rekstur kirkjunnar og eru nú tveir kórstjórar starfandi með kórinn sem dafnar jafnt og þét með börnum á aldrinum 3ja til 13 ára.
Farnar voru tvær ferðir til með fermingarbörn ásamt leiðtogum, starfsfólki og sjálfoðaliðum, önnur í Knattholmen í Sandefjord og hin til Svíþjóðar. Ferðin til Svíþjóðar hófst á
leiðtoganámskeiði á fimmtudeginum og upprifun sem kom sér vel fyrir leiðtogana sem sáu svo um hópefli og leiki fyrir hópinn alla helgina.
7. Skýrsla Ólafíusjóðs fyrir árið 2022
Stjórn
Nokkrar breytingar urðu á stjórn Ólafíusjóðs árið 2022. Rannveig Gísladóttir var formaður í upphafi árs en sagði sig frá störfum fyrir sjóðinn í febrúar. Steinunn K. Þórðardóttir, varaformaður, tók við sem formaður, og á aðalfundi vorið 2022 kom Margrét Gunnarsdóttir ný inn í stjórn. Á sama fundi var Steinunn valinn formaður sjóðsins.
Stjórn Ólafíusjóðs 2022:
Steinunn Þórðardóttir formaður
Margrét Gunnarsdóttir varaformaður
Ágústa María Figved gjaldkeri
Guðbjörg Magnúsdóttir meðstjórnandi
Guðrún Elín Svansdóttir meðstjórnandi
Guðbjörg Magnúsdóttir hefur verið frá vegna veikinda haustið 2022 og Guðrún Elín Svansdóttir hætti í stjórn á haustdögum 2022.
Prestur Íslensku kirkjunnar í Noregi, Sr Inga Harðardóttir, situr stjórnarfundi og vinnur fyrir sjóðinn.
Stjórnin fundaði með formlegum hætti fjórum sinnum á árinu 2022,
8.mars, 13.júní, 19. október og 17. nóvember.
Auk þess eru teknir símafundir þegar bregðast þarf hratt við umsóknum um neyðarstyrki.
Umsóknir
2 umsóknir um neyðarstyrki bárust, einni var hafnað og ein samþykkt. Alls 4500 NOK.
12 umsóknir bárust um jólastyrki sem allar voru samþykktar. Alls 63000 NOK.
Þrír aðilar fengu afhent matarkort. Alls 3000 NOK.
Samtals veittir styrkir 70500.
Fjárhagsstaðan
Í upphafi árs 2022 var staðan 30.262,61 NOK
Tekjur sem komu inn á árinu voru 100.000 NOK styrkur frá kirkjunni, 18.623 NOK í gjafir og söfnun.
Greiddir styrkir voru 67.500 NOK auk 3000 NOK.
Umræður
Skráning barna: Börn 15 ára og yngri eru skráð af foreldrum. Börn 16 ára og eldri skrá sig sjálf inn í söfnuðinn.
Þórhallur Guðmundsson tekur til máls og kynnir sig sem fyrsti formaður safnaðarins. Hrósar ræður allra sem hingað til hafa tekið til orða og finnst gott að sjá hvað mikið er vel gert. Hann þakkar sérstaklega Rebekku, Pálínu, Sr. Ingu og Berglindi fyrir frábær störf.
8. Fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram
Ársreikningar
Berglind tekur til máls og kynnir fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram (sjá viðhengi1). Endurskoðandi hafði ekki tök á því að klára sína endurskoðun í tæka tíð í ár fyrir fundinn en ekki er gert ráð fyrir því að neinar breytingar verði á. Verði svo verður það kynnt vel á heimasíðu kirkjunnar.
Í rekstrarkostnaði er helst að sjá breytingar í launakostnaði vegna leiðréttingu launa og mikilliar aukavinnu við vegna fjárdráttar. Einnig má sjá að umsvif kirkjunnar hafa aukist til muna miðað við 2021 vegna covid.
Útistandandi skuldir vegna gjaldkeramálsins eru skráðar sem tap á árinu og er það ákvörðun tekin í samráði við endurskoðanda sem taldi það eðlilegast þar sem fjárdrátturinn uppgötvast á þessu ári.
Fjárhagsáætlun.
Fjárhagsáætlun kynnt (sjá viðhengi 2) og er hún unnin út frá ársreikningum og útgjöldum síðasta árs með ákveðinni prósentu aukningu.
Umræður
Þórhallur kemur í pontu og bendir á fall sé í tekjum og að kostnaður hefur aukist. Mikill launakostnaður (rúm milljón). Stuðningur frá ríkinu hefur lækkað. Telur söfnuðinn vera á erfiðum sjó, og spyr hvort við séum nægilega dugleg að sækja miðin. Mikilvægt sé að fá fleiri meðlimi inn. Óskar eftir forgang til að auka tekjur og minnka rekstrarkostnað. Sigríður Elín bendir á að ekkert sé að því að halda áfram að nota peninga í starfið, og ekki endilega að auka innkomu.
9. Kosningar í safnaðarstjórn og varastjórn
Safnaðarstjórn er fullskipuð, en einn varamann vantar þar eð Eyjólfur og Guðrún Elín hafa hætt störfum.
Sturla Jónsson og Sigrún Helga Hartman bjóða sig til starfa í varastjórn.
29 fundargestir greiddu atkvæði: Sigrún Helga 27, Sturla 2 atkvæði.
10. Tillögur
Engar tillögur bárust.
11. Kosningar í kjörnefnd og aðrar nefndir
Kosningar í kjörnefnd
Eit laust sæti í kjörnefnd. Engin fundargesta býður sig fram, en Hjörleifur stingur upp á Sturla Jónsson. Hann tekur boðinu og er klappaður fram.
Kosning í Ólafíusjóð
Tvö sæti laus í Ólafíusjóð. Ásgerður Magnúsdóttir og Ingibjörg Jónasdóttir hafa boðið sig fram og báðar klappaðar fram.
12. Önnur mál
Fundarstjóri bendir á að það sé formaður sem boðar til fyrsta stjórnarfundar, en sá er ekki kosinn sérstaklega á aðalfundi. Þetta þarf að athuga og jafnvel leiðrétta í lögum safnaðarins.
Hjörleifur þakkar fyrir góða fundarstjórnun. Bendir á að stjórnin er að vinna í lagamálum og verður lagt fyrir næsta aðalfund.
Þórhallur stígur í pontu og talar um hvernig hann upplifir gott starf í kirkjunni. Rekur sögu sína og starf í söfnuðinum. Lítur björtum augum á starf safnaðarins framávið næstu 50 ár.
Eyjólfur Magnússon fráfarandi varamaður sem nú flut hefur til Íslands biður um orðið á Zoom. Hann þakkar fyrir góð störf og kynni, við söfnuðinn, Íslendingafélagið og allt það fólk sem hann hefur starfað með og sem hefur orðið vinhollur.
Einar Trausti tekur til máls, og færir Þórhalli, Elínu Soffíu og Sr. Ingu blóm og þakklætisvott.
Fundi slitið klukkan 17.05