KIRKJUSTARF

KIRKJUSTARF KIRKJUSTARF

Kirkjustarfið er fjölbreytt og í stöðugri uppbyggingu. Leitast er við að efla starf víðs vegar um landið með tengiliðum á hverjum stað fyrir sig. Sem dæmi um það má nefna barna- og unglingastarf sem hefur verið haldið úti um árabil á fleiri stöðum.

Unglingastarf hefur verið miðað við 13-20 ára. Starfið hefur verið öflugt síðan það hófst árið 2008, mjög fjölbreytt starf sem leggur áherslu á gott samfélag og dagskrá sem passar hverjum hópi fyrir sig.

KIRKJUSTARF

Í Ólafíustofu hefur nokkuð reglulega verið boðið upp á Krílakaffi og Gæðastundir. Í Krílakaffi eiga foreldrar og forráðamenn ungra barna saman notalega stund með söng og notalegu spjalli. Gæðastunda hópurinn hittist að jafnaði einu sinni í mánuði yfir léttum hádegisverði og margvíslegri dagskrá og/eða spjalli.

Mánaðarlegar guðsþjónustur sem hluti af föstu helgihaldi hafa verið í Ósló, Kristiansand og Sandefjord. Einnig má nefna jólahátíðir, sem hafa verið fastur liður víða um landið, og sjómannadagsmessu í Tromsø.

Það er einnig stefna kirkjunnar að bjóða upp á margvísleg námskeið og fræðslu fyrir fullorðna, s.s. sjálfsstyrkjandi námskeið og uppbyggjandi fræðslu.

Sjálfboðaliðastarf er þýðingarmikið fyrir allt starf kirkjunnar. Það er fjölbreytt starf og margir möguleikar fyrir áhugasama.

 

 

Powered by Cornerstone