Jólahátíð í Sandefjord 2026

Jólahátíð í Sandefjord

Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord.

Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.

Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.

Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.

Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka.

Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!

Gerist fljótlega
Krílakaffi í Ólafíustofu
Torsdag, november 5, 2026 11:00
Krílakaffi í Ólafíustofu einn fimmtudag í mánuði. Notaleg stund og ljúf stund fyrir börn og fullorðna þar sem tilvalið er fyrir foreldra og forráðamenn, afa og ömmur, eða aðra sem eru að gæta ungra barna, að koma og spjalla saman, syngja með litlu krílunum og eiga gæðastund í góðu samfélagi. Í Ólafíustofu er ágætis aðstaða fyrir krílin, skiptiborð, matarstólar, stórt leikteppi, leikföng og bækur en síðast en ekki síst hin krílin sem er svo gaman að hitta. ( ...svo erum við líka með sófa fyrir fullorðna fólkið) Boðið er upp á léttar veitingar og kaffi. Húsið opnar kl. 11. Verið öll hjartanlega velkomin!!
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, november 12, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Powered by Cornerstone