Aðalfundagerð - auka aðalfundur 2025 vegna sölu á prestbústaðnum

Auka-aðalfundur 14.08.2025

Fundur er settur.

  • Fundarstjóri Þórður, fundarritari Sigrún.

Samþykkt einróma.

  • Formaður kynnir tillögu stjórnar um sölu. Segir frá húsinu, kaupverði á sínum tíma, rekstrarkostnaði, viðhaldskostnaði, viðhaldsþörf, viðhaldsframkvæmdum, lán stendur í 1,3mill. 
    1. Núverandi prestur nýtir ekki húsið.
    2. Annað hvort þarf að leigja eða selja.
    3. Spurningar?
    4. Viljum losa söfnuðinn við eignina og þann kostnað sem í það myndi annars fara, sem og að nýta í starfið.
  • Tillaga stjórnar. Fundarstjóri les upp tillöguna sem kosið verður um.

 

Tillaga:

Að mati stjórnar er því rétt að selja eignina, að fengnu faglegu verðmati og fyrir sanngjarnt söluverð.

Almennt á þessu svæði hefur húsnæðisverð hækkað á þessum tíma (index 1.361 ≈ 7,827,000 NOK*). Verulega ólíklegt er að húsið seljist á lægra verði en það var keypt á, þó töluverð viðhaldsþörf sé. Og salan mun því hafa verulega jákvæð áhrif á fjárhaginn og sérstaklega á lánakostnað.

Ef fundurinn samþykkir tillögu stjórnar verður aflað verðmats og söluferli hafið eigi síðar en í október 2025

 

Leggur til að verðir kosið, með eða móti. 

 

Tillagan er samþykkt einróma.

Fundur hefur samþykkt tillöguna.

Engin fleiri mál eru á dagskrá og fundi er slitið.

 

 

Gerist fljótlega
Handavinnuhittingur í Ólafíustofu
Torsdag, august 27, 2026 18:00
Taktu fram prjónana, heklunálina eða annað handverk, nú eða bara kjaftavaðalinn og vertu með okkur í notalegri stemningu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo. Húsið opnar kl 18:00. Léttar veitingar í boði. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Hausthátíð í Trondheim
Lørdag, august 29, 2026 15:00
Laugardaginn 29.ágúst ætlum við að hittast og eiga skemmtilega fjölskyldustund saman við bálið í fallegri náttúru við Pettersenfjære. Hittingurinn er í góðri samvinnu milli Íslendingafélagsins Kjartans og Íslensku kirkjunnar í Noregi. Boðið verður upp á söng við bálið. skemmtilega leiki, brúðuleikhús, pylsupartý og notalega útiveru. Íslendingafélagið verður vel merkt íslenska fánanum og tekur á móti ykkur kl 13:00 á bílastæðinu við Tangenfjære. Frá bílastæðinu við Tangenfjære er gengið eftir stígnum meðfram sjónum í átt að litla nesinu hægra megin. Pettersenfjæra er svæðið alveg yst á nesinu, þar sem stígurinn endar við sjóinn. Frá bílastæðinu tekur bara nokkrar mínútur að ganga þangað. Gönguferðin frá bílastæðinu er afar létt og hentar vel öllum aldri. Ef þið komið seinna þá hafið þið samband við okkur og við leiðbeinum ykkur að svæðinu. Svæðið er einstaklega fallegt, það er Gapahuk á staðnum, borð til að setjast við með frábæra aðstöðu fyrir samveruna. Hlökkum til að sjá ykkur.
Hausthátíð við Sognsvann í Osló
Søndag, august 30, 2026 13:00
Hausthátíð í Oslo Við hittumst á Sognsvann kl 13:00 þann 30. ágúst í huggulegu haustskapi. Haustföndursmiðjur, sunnudagaskóli, útileikjastöðvar, samvera og notalegheit eru þema dagsins. Fullkomin dagur fyrir alla fjölskylduna til að búa til dásamlegar haustminningar saman í góðum félagsskap. Íslendingafélagið í Oslo sér um pylsuveislu fyrir alla þá sem mæta. Við hvetjum ykkur að taka með teppi til þess að sitja á. Við hittumst hjá hliðinu við aðal sjoppuna á Sognsvann. Við verðum með íslensku fánana við upplýsingaskiltin þar. Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll.
Powered by Cornerstone