Aðalfundagerð - auka aðalfundur 2025 vegna sölu á prestbústaðnum

Auka-aðalfundur 14.08.2025

Fundur er settur.

  • Fundarstjóri Þórður, fundarritari Sigrún.

Samþykkt einróma.

  • Formaður kynnir tillögu stjórnar um sölu. Segir frá húsinu, kaupverði á sínum tíma, rekstrarkostnaði, viðhaldskostnaði, viðhaldsþörf, viðhaldsframkvæmdum, lán stendur í 1,3mill. 
    1. Núverandi prestur nýtir ekki húsið.
    2. Annað hvort þarf að leigja eða selja.
    3. Spurningar?
    4. Viljum losa söfnuðinn við eignina og þann kostnað sem í það myndi annars fara, sem og að nýta í starfið.
  • Tillaga stjórnar. Fundarstjóri les upp tillöguna sem kosið verður um.

 

Tillaga:

Að mati stjórnar er því rétt að selja eignina, að fengnu faglegu verðmati og fyrir sanngjarnt söluverð.​

Almennt á þessu svæði hefur húsnæðisverð hækkað á þessum tíma (index 1.361 ≈ 7,827,000 NOK*). Verulega ólíklegt er að húsið seljist á lægra verði en það var keypt á, þó töluverð viðhaldsþörf sé. Og salan mun því hafa verulega jákvæð áhrif á fjárhaginn og sérstaklega á lánakostnað.​

Ef fundurinn samþykkir tillögu stjórnar verður aflað verðmats og söluferli hafið eigi síðar en í október 2025

 

Leggur til að verðir kosið, með eða móti. 

 

Tillagan er samþykkt einróma.

Fundur hefur samþykkt tillöguna.

Engin fleiri mál eru á dagskrá og fundi er slitið.

 

 

Gerist fljótlega
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Jólahátíð í Sandefjord
Søndag, november 29, 2026 14:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Litlu Jólin / Hangikjötsboð í Ólafíustofu
Torsdag, desember 3, 2026 12:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á árleg Litlu Jólin / Hangikjötsboð í Ólafíustofu þann 3. desember kl. 12. Það hefur verið met þátttaka undanfarin ár og þéttsetið. Því er nauðsynlegt að skrá sig svo við séum örugglega með pláss fyrir alla. Það verðum einnig viðburður kl. 17. - sjá hér á síðunni. ÞAÐ ER FULLT KL. 17. Skráningin fer fram hér: https://kirkjan.no/kirkjustarf/gaedastundir-60/litlujolin Fyrir þá sem hafa tök á því að greiða að þá eru verðin eru eftirfarandi: Fullorðnir 250 nkr Eldri börn 100 nkr Yngri börn 50 nkr Börn yngri en tveggja ára greiða ekkert. Hægt er að greiða með Vipps á númerið #32731 eða á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur.
Powered by Cornerstone