Verið hjartanlega velkomin í fermingarfræðsluna!
Fermingarárið markar tímamót í lífinu og fermingin á sér stað á miklum breytingatíma í lífi ungrar manneskju. Fermingarfræðslan býður upp á samtal um gildin í lífinu, hvað það er að vera almennileg manneskja og hvað trú og lífsviðhorf hafa til málanna að leggja. Í fermingarfræðslunni er ekki lögð áhersla á utanbókarlærdóm heldur á það að unglingarnir fái tækifæri og stuðning til að hugsa sjálfstætt og leita svara við stóru spurningunum í lífinu, m.a. um Guð, lífið, eilífðina, æðruleysi og hvað við getum sjálf lagt af mörkum til eigin hamingju. Í því samhengi kynnast fermingarbörnin trú og bæn, Biblíunni, starfi kirkjunnar og kærleiksboðskap Jesú Krists.
HVAR OG HVERNIG FER FRÆÐSLAN FRAM?
Fermingarfræðslan hjá Íslensku kirkjunni fer fram á annan hátt en hjá öðrum kirkjum því fermingarbörnin eru dreifð um allan Noreg en öll fermingarbörnin taka virkan þátt engu að síður. Mest af kennslunni fer fram á tveimur fermingarfræðsluhelgum í Svíþjóð, ein að hausti og önnur að vori, sem mikilvægt er að öll fermingarbörnin sæki. Fermingarnámskeiðin fara fram með íslenskum fermingarbörnum frá Danmörku og Svíþjóð. Farið er til Åh stiftsgård í Svíþjóð og er helgardagskráin full af leikjum, fræðslu og frjálsum tíma.
Börnin fá kennsluefni að láni á fyrra fermingarnámskeiðinu í Svíþjóð og skila kennslugögnum á fermingarnámskeiðinu að vori. Á haust námskeiðinu verður farið nánar í fyrirkomulagið á verkefnavinnu og skil á verkefnum. Prestur verður i símasambandi við einstaka barn á messenger einu sinni í mánuði og fylgir eftir heimanáminu. Að auki mun allur hópurinn hittast þrisvar sinnum á Zoom á hvorri önn.
Við biðjum fermingarfræðslunemendur að sækja messur í heimabyggð, gjarnan með einhverjum úr fjölskyldunni.
Fræðslulýsing:
Í fermingarfræðslunni verður meðal annars fjallað um gildi í lífinu, hugtök kristinnar trúar, samfélag, menningu og fjölmenningu, athafnir kirkjunnar, bænina, trúarlíf, sjálfsmynd og aðstæður ungmenna.
Yfirmarkmið:
Fermingarfræðslunni er ætlað að vekja og efla með ungmennum trú á Guð, kenna þeim um grundvallaratriði kristinnar trúar og virkja þau í starfi kirkjunnar.
Ennfremur að hjálpa börnum að varðveita eigin trúarsannfæringu um leið og þau læra að virða þau sem hafa aðra trúarsannfæringu.
Undirmarkmið:
Að nemendur:
KOSTNAÐUR
Hver fermingarfræðsluhelgi kostar 1200nkr. Þáttöku kostnaður hvers fermingarbarns verður því 2400nkr. fyrir veturinn Kirkjan niðurgreiðir þáttökugjald fermingarhelganna að stórum hluta. Mikilvægt er að kostnaðurinn verði ekki ástæða þess að börnin taki ekki þátt á námskeiðunum. Hafið heldur samband og við finnum lausn.
Íslenska kirkjan stendur straum af öllum ferðakostnaði fermingarbarnanna á fermingarnámskeiðin óháð því hvar í Noregi þau eru búsett .
Foreldrar eru velkomin með sem sjálfboðaliðar.
Berglind Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri Ólafíustofu, aðstoðar við að skipuleggja ferðalagið.
Fræðarar námskeiðsins:
sr Lilja Kristín Þorsteinsdóttir prestur, Pálína Ósk Hraundal menningarfulltrúi, Bergrún Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi, Guðjón Andri Reynisson Rabbevåg. Fleiri leiðtogar og kennarar eru einnig með í ferðalögum.
Námsmat haustmisseris:
Prestur heldur utan um mætingu og verkefnavinnu hvers fermingarbarns og metur hana. Ef fermingarbarnið fermist hjá öðrum söfnuði og presti, t.d. á Íslandi, er hægt að fá skriflega staðfestingu á þátttöku í fermingarnámskeiði Íslenska safnaðarins.
Námsáætlunin byggir á námskrá fermingarstarfa frá Biskupsstofu.
FERMINGARDAGAR
Hvítasunnudag 16. maí, kl. 14. í Bøler kirkja í Osló
Sunnudagurinn 27. júní, kl. 11. í Háteigskirkju, Reykjavík.
Einnig er möguleiki að fermast hjá öðrum prestum og kirkjum á Íslandi. Ef þið óskið eftir því, eða eftir öðrum möguleikum, má endilega ræða það við okkur.
MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR
Vinsamlegast takið helgarnar strax frá!
10.sept. Fræðsla á netinu kl.15.30
18. - 20. sept Fermingarnámskeið í Svíþjóð. Farið með rútu frá Osló.
15. okt. Fræðsla á netinu kl. 15.30
19. nóv. Fræðsla á netinu kl. 15. 30
21. jan.2027. Fræðsla á netinu kl. 15.30
18. mars 2027, fræðsla á netinu kl. 15.30
30.april - 2. maí 2027 Fermingarnámskeið í Svíþjóð. Farið með rútu frá Osló.
16. maí. Fermingarmessa í Osló
27. júní Fermingarmessa í Háteigskirkju í Reykjavík
Við hvetjum fermingarbörnin og foreldra að mæta í guðsþjónustur og ungmennahittinga í sinni heimabyggð. Íslenska kirkjan er með reglulegar guðsþjónustur í Osló, Kristiansand og Sandefjord og fyrir jólin bætast Bergen, Stavanger og Þrándheimur við.
Einnig bjóðum við upp á ungmennahittinga í Osló einu sinni í mánuði, og öðru hvoru í Bergen, Stavanger og Sandefjord. Og því tilvalið að nýta sér unglingahópana sem eru starfandi þar til að kynnast öðrum íslenskum krökkum.
Og ef ykkur langar að byrja með ykkar eigið æskulýðsstarf eða unglingahóp megið þið endilega hafa samband við okkur til að koma því af stað. Bergrún Bjarnadóttir, æskulýðsfulltrúi safnaðarins og allir flottu leiðtogarnir okkar eru til í allskonar skemmtilegheit með unglingum um allt land.
Námsmat haustmisseris:
Prestur heldur utan um mætingu og verkefnavinnu hvers fermingarbarns og metur hana. Ef fermingarbarnið fermist hjá öðrum söfnuði og presti, t.d. á Íslandi, er hægt að fá skriflega staðfestingu á þátttöku í fermingarnámskeiði Íslenska safnaðarins.
Námsáætlunin byggir á námskrá fermingarstarfa frá Biskupsstofu.
Skráning í fermingarfræðsluna í valmynd hér á efst
síðunni eða smelltu hér