Aðalfundargerð 2025

 

Aðalfundur Íslensku kirkjunnar í Noregi

22. mars 2025 – fundargerð

Dagskrá aðalfundar

1. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

3. Skýrsla stjórnar

4. Skýrsla sóknarprests 5. Fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram

6. Kosning í safnaðarstjórn og varastjórn

7. Tillögur

8. Kosning í kjörnefnd og aðrar nefndir

9. Önnur mál

Hjörleifur Valsson, formaður stjórnar, býður fundargesti velkomna.

  1. Formaður kannar hvort að löglega sé til fundar boðað. Niðurstaðan er að löglega var boðið til fundarins.

 

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. Stungið er upp á Valdimar Erni Karlssyni sem fundarstjóra og er það samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta. Stungið er upp á Jónínu M Arnórsdóttur sem fundarritara og er það einnig samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta.

 

Fundarstjóri leggur til að skýrsla Ólafíusjóðs verði lögð fram að lokinni skýrslu sóknarprests og fær samþykki fyrir því. Hann biður einnig að umræður verði opnaðar um skýrslur áður en liður 5 hefjist og fær samþykki fyrir því.

  1. Formaður flytur skýrslu stjórnar (sjá skýrslu)

 

Hjörleifur þakkar fráfarandi stjórnarmanni, Birni Hallbeck, fyrir trúmennsku liðinna 10 ára og sr. Ingu Harðardóttur fyrir frábært starf. Hún hefur sagt upp störfum og flytur til Íslands í sumar. Hann þakkar einnig starfsfólki kirkjunnar fyrir góð störf og félögum úr Íslendingafélaginu í Oslo fyrir að standa kaffivaktina. Öllum eru afhent blóm í þakkarskyni.

  1. Skýrsla sóknarprest flutt af sr. Ingu Harðardóttur (sjá skýrslu)

 

Skýrsla Ólafíusjóðs flutt af Steinunni Þórðardóttur (sjá skýrslu)

Þórhallur Guðmundsson biður um orðið og kemur í pontu og spyr hvort að nánari upplýsingar komi frá stjórn varðandi fjársvikamál sem upp kom. Hann spyr einnig um forvarnir til að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst aftur.

Formaður og gjaldkeri svara og gefa upplýsingar um bæði að hægt sé að kynna sér opinber gögn en stjórn muni ekki upplýsa nánar en gert hefur verið og svo hvernig unnið er með bókhaldsfyrirtæki og að reglur hafi verið hertar til að koma í veg fyrir að hægt sé að misnota aðstæður.

 

  1. Fjárhagsáætlun og ársreikningar kynnt af gjaldkera, Kötlu Sveinbjörnsdóttur (sjá áætlun).

 

Ársreikningar og fjárhagsátlun samþykkt.

Þórhallur Guðmundsson kemur upp og ber upp spurningar til gjaldkera.

Rekstrarafgangur er undir 5%, spyr hvort hægt sé að stofna varasjóð til að forðast fjárhagsleg áföll – svar: stjórn tekur tillöguna til sín.

Vill vita afhverju kostnaður hafi aukist – svar: Laun starfsfólks og stjórnar hafi hækkað og það hefur verið aukin yfirvinna.

 

  1. Kosning í safnaðarstjórn og varastjórn. Kjörnefnd hefur verið að störfum og formaður nefndar, Margrét Gunnarsdóttir, kemur upp og segir frá störfum og vinnuferli.

 

Auglýst var eftir framboðum á netsíðu kirkjunnar.

Hjörleifur Valson og Björn Hallbeck hafa setið í stjórn í fjögur ár. Tilnefndir hafa verið tveir einstaklingar til aðalstjórnar:

Jenný Rut Sigurðardóttir og Þórður Reynisson

Hjörleifur Valsson býður sig fram til áframhaldandi starfa í aðalstjórn.

Elín Soffía Pilkington býður sig fram til aðalstjórnar.

Hjörleifur Valson kynnir sig og Katla Sigurbjörnsdóttir kynnir Elínu Soffíu Pilkington (sem er á Zoom)

Tilnefndir hafa verið tveir nýir einstaklingar til varastjórnar:

Dagný Helga Ísleifsdóttir og Margrét Ágústa Sigurðardóttir. Báðar kynntar af Margréti Gunnarsdóttur, formann kjörnefndar.

Borist hafa tvö skrifleg framsöl til atkvæða úr fundarsal.

Niðurstöður kosninga til aðalstjórnar:

Jenný Rut Sigurðardóttir 54 atkvæði

Þórður Reynisson 49 atkvæði

Hjörleifur Valsson 17 atkvæði

Elín Soffía Pilkington 10 atkvæði

Niðurstöður kosninga til varastjórnar:

Dagný Helga Ísleifsdóttir og Margrét Ágústa Sigurðardóttir

Kolbrún Rut Ragnarsdóttir

Ný aðalstjórn: Guðjón Andri Rabbevåg Reynisson Katla Sveinbjörnsdóttir Sigrún Helga Hartmann

Þórður Reynisson Jenný Rut Sigurðardóttir

Ný varastjórn: Kolbrún Rut Ragnarsdóttir

Margrét Ágústa Sigurðardóttir

Dagný Helga Ísleifsdóttir

Kosningar í kjörnefnd og aðrar stjórnir

Ekki þörf á kosningum

  1. Lagbreytingar

 

Tillögur til lagabreytinga frá síðasta ári samþykkt samhljóða (sjá fundargerð síðasta árs)

Tillaga um lagabreytingar: Stjórn kirkjunnar óskar eftir samþykki aðalfundar um að hækka framlag til Ólafíusjóðs úr 130.000 í 180.000. Samþykkt samhljóða.

Tillögur til lagabreytinga Ólafíusjóðs samþykkt samhljóða

  1. Önnur mál – engin

 

Jónína Margrét Arnórsdóttir

fundarritari

Gerist fljótlega
Handavinnuhittingur í Ólafíustofu
Torsdag, august 27, 2026 18:00
Taktu fram prjónana, heklunálina eða annað handverk, nú eða bara kjaftavaðalinn og vertu með okkur í notalegri stemningu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo. Húsið opnar kl 18:00. Léttar veitingar í boði. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Hausthátíð í Trondheim
Lørdag, august 29, 2026 15:00
Laugardaginn 29.ágúst ætlum við að hittast og eiga skemmtilega fjölskyldustund saman við bálið í fallegri náttúru við Pettersenfjære. Hittingurinn er í góðri samvinnu milli Íslendingafélagsins Kjartans og Íslensku kirkjunnar í Noregi. Boðið verður upp á söng við bálið. skemmtilega leiki, brúðuleikhús, pylsupartý og notalega útiveru. Íslendingafélagið verður vel merkt íslenska fánanum og tekur á móti ykkur kl 13:00 á bílastæðinu við Tangenfjære. Frá bílastæðinu við Tangenfjære er gengið eftir stígnum meðfram sjónum í átt að litla nesinu hægra megin. Pettersenfjæra er svæðið alveg yst á nesinu, þar sem stígurinn endar við sjóinn. Frá bílastæðinu tekur bara nokkrar mínútur að ganga þangað. Gönguferðin frá bílastæðinu er afar létt og hentar vel öllum aldri. Ef þið komið seinna þá hafið þið samband við okkur og við leiðbeinum ykkur að svæðinu. Svæðið er einstaklega fallegt, það er Gapahuk á staðnum, borð til að setjast við með frábæra aðstöðu fyrir samveruna. Hlökkum til að sjá ykkur.
Hausthátíð við Sognsvann í Osló
Søndag, august 30, 2026 13:00
Hausthátíð í Oslo Við hittumst á Sognsvann kl 13:00 þann 30. ágúst í huggulegu haustskapi. Haustföndursmiðjur, sunnudagaskóli, útileikjastöðvar, samvera og notalegheit eru þema dagsins. Fullkomin dagur fyrir alla fjölskylduna til að búa til dásamlegar haustminningar saman í góðum félagsskap. Íslendingafélagið í Oslo sér um pylsuveislu fyrir alla þá sem mæta. Við hvetjum ykkur að taka með teppi til þess að sitja á. Við hittumst hjá hliðinu við aðal sjoppuna á Sognsvann. Við verðum með íslensku fánana við upplýsingaskiltin þar. Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll.
Powered by Cornerstone