Aðventuhátíð 2026
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026
Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00.
Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti.
Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning.
Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna.
Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið.
Hlý og kærleiksrík aðventustemning fyrir alla.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
