Aðventukransagerð 2026

Aðventukransagerð í Ólafíustofu

Verið velkomin/n til okkar í yndislega aðventustemmningu fimmtudaginn 19.nóvember í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo.

Við ætlum að búa til fallega aðventukransa eins og undanfarin ár í öllum stærðum og gerðum. 

Hráefnið fyrir kransagerðina verður klárt í Ólafíustofu. Við hvetjum ykkur til að endurnýta kransa frá því í fyrra og koma með ef þið viljið. 

Léttar veitingar verða á staðnum. 

Kostnaður 350 nok á einstakling.

 

Hlökkum til að sjá ykkur. 

Skráning er nauðsynleg til palina@kirkjan.no Takmörkuð pláss. 

Sjáumst í kransagerð! 🙂 

Gerist fljótlega
Aðventukransagerð í Ólafíustofu
Torsdag, november 19, 2026 17:00
Verið velkomin/n til okkar í yndislega aðventustemmningu fimmtudaginn 19.nóvember í Ólafíustofu. Við ætlum að búa til fallega aðventukransa eins og undanfarin ár í öllum stærðum og gerðum. Hráefnið fyrir kransagerðina verður klárt í Ólafíustofu. Við hvetjum ykkur til að endurnýta kransa frá því í fyrra og koma með ef þið viljið. Léttar veitingar verða á staðnum. Efniskostnaður er 350 nok á einstakling fyrir þá sem hafa tök á. Hlökkum til að sjá ykkur. Skráning er nauðsynleg til palina@kirkjan.no Takmörkuð pláss. Sjáumst í kransagerð! ? Se mindre
Aðventuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi 2026
Søndag, november 22, 2026 15:00
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00. Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning. Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna. Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið. Hlý og kærleiksrík aðventustemning. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Powered by Cornerstone