Ungmennahittingur - Eyjahopp 2026

Ungmennahittingur - Eyjahopp!

Sunnudaginn 7. júní verður ungmennahittingur! Við ætlum að fara í eyjahopp á Oslóarfirðinum⛵️

Mæting er í Ólafíustofu kl 15:00. til að safna hópnum saman og Bergrún og Natalía taka vel á móti öllum! 
Síðan verður gengið í sameiningu niður að Aker Brygge þar sem við tökum ferjuna yfir í eyjarnar, kirkjan greiðir fargjöldin.

Það verða grillaðar pylsur og sykurpúðar, við förum í einhverja skemmtilega leiki og njótum góða veðursins sem er búið að lofa okkur ☀️

 

Hlökkum til að sjá sem flesta!

 

Gerist fljótlega
Kvennakvöld Ólafíusjóðs - Konur eru konum bestar!
Torsdag, juni 4, 2026 16:30
Velkomnar á kvennakvöld Ólafíusjóðs 2026! Ólafíusjóður í samstarfi við Sendiráð Íslands í Noregi býður til kvennakvölds í embættisbústaðnum á Aker Brygge! Konur eru konum bestar! Kvennakvöldið er einstakt tækifæri til þess að kynnast öðrum íslenskum konum í Noregi og efla þannig tengslanet sitt í jákvæðu og uppbyggilegu andrúmslofti. Við munum fá til okkar frábæra gesti og í gegnum örsögur fáum við innsýn í líf þeirra og starf hér í Noregi. Auk þess verður sagt frá kvenskörungnum og heimskonunni Ólafíu Jóhannsdóttur, sem er þjóðkunn í Noregi fyrir störf sín í þágu kvenna í byrjun síðustu aldar. Það verða léttar veitingar í boði hússins. Allur ágóði af miðasölu rennur í Ólafíusjóð og auk þess er hægt að leggja fram frjáls framlög. Staður: Sendiráðsbústaðurinn á Aker Brygge, Tímasetning: 4. júní 16.30-19.00. Miðaverð 275 NOK Hlekkur á miðasölu! https://olafiusjodur.hoopla.no/event/1069482756 Rými er takmarkað svo endilega tryggið ykkur miða áður en húsið fyllist! Sjáumst hressar!
Guðsþjónusta og sjómannadagshátíð í Tromsø
Søndag, juni 7, 2026 13:00
Sjómannadagshátíð í Tromsø Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Tromsø þann 6. júní 2026. Dagskráin hefst með ljúfri og líflegri fjölskyldumessu í Grønnåsen kirkju kl 13:00, sem sr Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir. Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á pokahlaup, andlitsmálningu og skapandi föndurhorn, gleði og góða samveru, og að sjálfsögðu kaffihlaðborð og pylsupartí í samstarfi við Íslendingafélagið Hrafnaflóka. Alvöru íslensk hátíðarstemmning ❤ Kökur og góðgæti mega gjarnan koma með ykkur á sameiginlegt kaffihlaðborð. Pylsur og meðlæti, drykkir og kaffi verða á staðnum í boði kirkjunnar og Hrafnaflóka. Hlökkum til að halda sjómannadaginn hátíðlegan! Verið hjartanlega velkomin!
Ungmennahittingur - Eyjahopp!
Søndag, juni 7, 2026 15:00
Sunnudaginn 7. júní verður ungmennahittingur! Við ætlum að fara í eyjahopp á Oslóarfirðinum⛵️ Mæting er í Ólafíustofu kl 15:00. til að safna hópnum saman og Bergrún og Natalía taka vel á móti öllum! Síðan verður gengið í sameiningu niður að Aker Brygge þar sem við tökum ferjuna yfir í eyjarnar, kirkjan greiðir fargjöldin. Það verða grillaðar pylsur og sykurpúðar, við förum í einhverja skemmtilega leiki og njótum góða veðursins sem er búið að lofa okkur ☀️ Hlökkum til að sjá sem flesta!
Powered by Cornerstone