SKRÁNING Í ÍSLENSKU KIRKJUNA Í NOREGI

Hér áður fyrr var Íslenska kirkjan í Noregi eins og aðrar sóknir Þjóðkirkjunnar og þeir sem tilheyrðu henni færðust sjálfkrafa á milli sókna við flutning, það átti einnig við þegar fólk flutti til Noregs. Upplýsingar um skráningu voru þá fengnar frá Þjóðkirkjunni og þeir skráðir í Íslenska söfnuðinn sem þegar tilheyrðu Þjóðkirkjunni og fluttu búferlum til Noregs..

Árið 2016 var hert á lögum Norska ríkissins, sem greiðir sóknargjöld skráðra trúfélaga hér í landi, varðandi það að allir skráðir meðlimir þurfa sjálfir að staðfesta skráningu sína. Þar með var þáverandi meðlimatali eytt og skráning hafin upp á nýtt. Íslenski söfnuðurinn fór í heilmikið átak og naut þjónustu úthringifyrirtækis sem sá um að hringja í sem flesta ,,fyrrverandi" meðlimi og gekk það mjög vel. Þó má alltaf bæta á sig blómum bæta og unnið hefur verið jafnt og þétt að því síðan þá að auka skráningu í kirkjuna okkar.

Eins og áður hefur verið nefnt að þá greiðir norska ríkið kirkjunni sóknargjöld og eru þau greidd sem ákveðin upphæð fyrir hvern skráðan meðlim. Það er því hagur allra þeirra sem njóta þjónustu og viðburðar kirkjunnar að sem flestir séu skráðir því þannig höfum við möguleika á að bjóða upp á sem víðtækasta þjónustu og fjölbreytt starf. 

Það er þó ekki skilyrði fyrir þáttöku né þjónustu að vera skráður meðlimur og öllum velkomið að taka þátt í starfinum með einum eða öðrum hætti. En við kunnum virkilega vel að meta það, að sem flestir skrái sig. Þannig tryggjum við saman áframhaldandi blómlegt starf Íslensku kirkjunnar í Noregi sem kærleiksríkt samfélag Íslendinga í Noregi.

 

Til að skrá sig í Íslensku kirkjuna í Noregi er hægt að nýta hlekk hér að neðan og fylla út skráningarformið og senda inn.

Skráning í Íslensku kirkjuna í Noregi

 

Á sömu síðu efst í hægra horni er að finna ,,MIN SIDE", þar er hægt að skrá sig inn með norskum rafrænum skilríkjum ( BankID ) og sjá hvort skráning í söfnuðinn er fyrir hendi. Mögulegt er að skrá sig úr söfnuðinum á þeirri síðu.

 

Til að skrá sig í kirkjuna þarf að hafa norska kennitölu og vera búsettur í Noregi.

Börn undir 15 ára aldri skulu skráð af forráðamanni þar sem börn yfir 12 ára aldri skulu einnig gefa sitt samþykki fyrir skráningu.

Allir yfir 15 ára aldri geta sjálfir skráð sig í eða úr kirkjunni án samþykkis frá forráðamanni.

Enginn skal vera skráður án samþykkis og ef einhver er í vafa hvort hann/hún sé skráður, og hefur ekki aðgang að BankId, er einnig hægt að hafa samband við Brønnøysundsregistrene og fá upplýsingar um það sendar í pósti.

 

Inn og útskráning í Þjóðkirkjuna á Íslandi verður að fara í gegnum Þjóðskrá Íslands.

Skráningarform fyrir Þjóðkirkjuna má finna hér!

Powered by Cornerstone