Yndislegt tónlist frá Jónínu Ara með sína ómþýðu rödd og ljúfa jólatóna á gítarinn, Benjamín lék undir hjá henni í tveimur lögum og spilaði eins og honum einum er lagið á flygilinn. Laffí undir stjórn Rebekku sungu af fagmennsku enda nýbúin að halda stórfenglega tónleika fyrir fullu húsi á Sentralen og í Hörpunni.
Íslendingjafélagið sá svo um glæsilegt kaffihlaðborð að vanda en vel vandað og sjóað fólk þar í stafni.
Síðast en ekki síst eiga allir gestir þakkir fyrir hlýtt viðmót og gott spjall, án ykkar værum við ekki þetta góða samfélag sem við sækjum öll saman í.
Við birtum hér nokkrar fjölbreyttar myndir frá hátíðinni í dag.
Takk fyrir frábæran dag. ![]()
![]()
![]()

