En hver er Síta ?
Sigríður Síta Pétursdóttir er fædd 14. Desember árið 1955 í Reykjavík, elst af fjórum systkinum.
Gefum Sítu orðið ![]()
Gift honum Hilmari mínum í 30 ár. Mamma þriggja barna, amma 9 barnabarna + 1 bónus
barnabarn og 2 langömmubörn.
Ég brenn fyrir velferð yngstu þegnanna því barnæskan varir að eilífu.
Því hef ég í gegnum 50 ára starf sem leikskólakennari lagt áherslu mikilvægi umhyggju, tengslamyndunar og
tilfinningagreindar og að njóta líðandi stundar.
Eftir að ég fór á eftirlaun hef ég miðlað þekkingu minni og reynslu með því að halda fyrirlestra og námskeið fyrir starfsfólk leikskóla. Auk þess hef ég tekið að mér hin ýmsu
aukahlutverk í bíómyndum, sjónvarpsseríum og auglýsingum, til að fara út og hitta fólk, í stað þess að fara að spila golf eða bridge.
Hlökkum til að sjá ykkur þann 22.nóvember í Bøler kirkju kl 15:00.
