Ungmennahittingur Jóla 2026

Það verður kósýhittingur fyrir ungmennin sunnudaginn 6.desember. Það verður byrjað á því að bjóða upp á heitt súkkulaði í Ólafíustofu ( Pilestredet Park 20 ) og svo verður Jólalandið í Osló á Karl Johan heimsótt.( Jul i Vinterland )
Öll ungmenni 12 ára og eldri hjartanlega velkomin.

Dásamlegt fyrir öll börn að hittast og kynnast öðrum íslenskum börnum á svipuðum aldi. Afslappað andrúmsloft og vel tekið á móti nýjum andlitum. 

Að sjálfsögðu er boðið upp á fylgd til og frá lestarstöðinni/ strætó fyrir þá sem vilja. 

Við hlökkum til að sjá ykkur. 

Skráning á þennan ungmennahitting er með tölvupósti til bergrun@kirkjan.no

Gerist fljótlega
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Jólahátíð í Sandefjord
Søndag, november 29, 2026 14:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Litlu Jólin / Hangikjötsboð í Ólafíustofu kl. 12
Torsdag, desember 3, 2026 12:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á árleg Litlu Jólin / Hangikjötsboð í Ólafíustofu þann 3. desember kl. 12. Það hefur verið met þátttaka undanfarin ár og þéttsetið. Því er nauðsynlegt að skrá sig svo við séum örugglega með pláss fyrir alla. Það verðum einnig viðburður kl. 17. - sjá hér á síðunni. ÞAÐ ER FULLT KL. 17. Skráningin fer fram hér: https://kirkjan.no/kirkjustarf/gaedastundir-60/litlujolin Fyrir þá sem hafa tök á því að greiða að þá eru verðin eru eftirfarandi: Fullorðnir 250 nkr Eldri börn 100 nkr Yngri börn 50 nkr Börn yngri en tveggja ára greiða ekkert. Hægt er að greiða með Vipps á númerið #32731 eða á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur.
Powered by Cornerstone