Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober

Yndisleg hrekkjavökustemning í sunnudagaskóla dagsins í Kristiansand. Margrét Ólöf leiddi stundina og Natalie ungleiðtogi henni til aðstoðar

Íslendingafélagið sá um kaffið og allir tóku með sér eitthvað gott á sameiginlegt hlaðborð🎃

Við erum að elska metnaðinn í bæði búningum og bakstrinum, alveg til fyrirmyndar!!

📸 Kristín Jóna Guðjónsdóttir

Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober Hrekkjavaka í Kristiansand 24. oktober

Gerist fljótlega
Ungmennahittingur - Piparkökukósý
Søndag, november 8, 2026 15:00
Á sunnudaginn verður ungmennahittingur í Ólafíustofu, Pilestredet park 20. ❄️?❄️ Piparkökukósý og samvera. Endilega sendið póst á bergrun@kirkjan.no ef að þið viljið að leiðtogarnir hitti unglingana á lestarstöð og verði samferða þeim til og frá Ólafíustofu. Hlökkum til að sjá ykkur
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, november 12, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Aðventuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi 2026
Søndag, november 22, 2026 15:00
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00. Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning. Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna. Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið. Hlý og kærleiksrík aðventustemning. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Powered by Cornerstone