Ólafíusjóður var með fjáröflun til styrktar sjóðnum og lukkuhjólið var ansi vinsælt! ![]()
Frú Þórunn Scheving Elíasdóttir las upp með sr Lilju Kristínu Þorsteinsdóttir um ævi Ólafíu.
Skemmtileg messa þar sem Ískórinn söng við undirleik Benjamíns Gísla.
Sr. Sjöfn Mueller Thor, prestur íslendinga í London og Luxemborg sá um sunnudagaskólann og hennar frábæri þýski leiðtogahópur sem við erum búin að vera með í vikunni settu upp skemmtilegt föndur og leiki. Takk fyrir metnaðinn!
Íslendingafélagið í Osló og nágrenni sá um Pálínuboðið í kirkjukaffinu sem var stórglæsilegt að vanda.
Takk fyrir komuna og samveruna öll sömul.

