Hugleiðing sr. Lilju Kristínar frá Ólafíuhátiðinni.

Það er eitthvað einstaklega hrífandi við lífssögu Ólafíu Jóhannsdóttur. Ekki vegna þess að líf hennar hafi verið auðvelt. Ekki vegna þess að hún hafi alltaf verið sterk, aldrei efast eða alltaf haft svörin. Heldur einmitt vegna þess að hún var manneskja, eins og ég og þú. Hún þekkti gleði og sorg. Hún þekkti vonir og vonbrigði. Hún þekkti trúna en einnig efasemdirnar. Ólafía hafði gengið í gegnum erfiða reynslu. Hún hafði þurft að glíma við eigin veikleika, trúarlegar spurningar og tilfinningar sem voru henni þungbærar. En í þeirri reynslu fann hún Guð. Ekki Guð sem var fjarlægur og dæmandi, heldur Guð sem var henni nálægur.

Kærleiksríkur Guð sem reynist styrkur á neyðar stundu. Guð sem hélt í hana. Þessu leitaðist hún við að miðla til annarra, einkum til þeirra sem samfélagið leit niður á og fordæmdi. Það er merkilegt að hugsa til þess að Ólafía hafi fundið köllun sína á stað þar sem flestir aðrir hefðu ekki viljað búa. Í þröngri götu, við fátækt og erfiðleika, fann hún tilgang. Þar sem aðrir sáu myrkur sá hún tækifæri til að vera öðrum ljós. Og það ljós lifir í minningunni um hana. Hún sá innra gildi manneskjuna að baki ytri aðstæðna. Hún sá að undir hörðu yfirborðinu var hjarta sem þráði kærleika. Hún trúði því að í hverri manneskju byggi eitthvað gott.

Okkur reynist auðvelt að dæma, að sjá mistök annarra. Jesús kennir okkur að horfa á náunga okkur á annan hátt. Jesús sá manninn Sakkeus í trénu þegar aðrir sáu aðeins spilltan tollheimtumann, glæpamann. Hann talaði við Samversku konuna við brunninn þegar aðrir hana forðuðust hana. Hann snerti líkþráa, tók á móti börnum og sat til borðs með fólki sem samfélagið hafði hafnað. Og hann sagði:„Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.“ Þetta eru ekki aðeins falleg orð. Þetta er áskorun. Áskorun til okkar-áskorun til kirkjunnar. Við lifum á öðrum tímum en Ólafía. Samfélagið hefur breyst. Velferðarkerfið er sterkara og margt hefur færst til betri vegar. En mannleg þörf fyrir kærleika hefur ekki breyst. Enn er fólk sem er einmana. Enn eru manneskjur sem búa við fjárhagslega erfiðleika. Enn er fólk sem glímir við veikindi, sorg, kvíða eða óöryggi. Enn eru þau sem samfélagið hefur hafnað. Enn er þörf fyrir fólk sem er tilbúið að staldra við, hlusta og rétta fram hjálpandi hönd. Þess vegna á saga Ólafíu erindi við okkur í dag. Hún kennir okkur að trúin verður ekki að fullu skilin nema hún birtist í kærleika. Hún minnir okkur á að við þurfum ekki að vera rík til að gefa. Við þurfum ekki að vera fullkomin til að hjálpa. Við þurfum ekki að hafa öll svörin til að sýna kærleika. Öll getum við sýnt meira umburðarlyndi, þolinmæði og dregið út dómhörku.

Stundum nægir að vera til staðar. Að hlusta og sýna skilning. Að bjóða fram aðstoð. Að láta aðra finna að þeir skipti máli . Megi minning Ólafíu hvetja okkur til að vera samfélag þar sem enginn þarf að standa einn. Þar sem við mætum hvert öðru af virðingu. Kæru vinir, höfum hugfast að við getum hvert og eitt verið ljós í lífi annarrar. Slíkt höldum við áfram því verki sem Ólafía helgaði líf sitt. Því kærleikurinn lifir ekki aðeins í minningunni. Hann lifir í því sem við gerum.

Megi Guð gefa okkur hugrekki til að sjá náunga okkar með augum Ólafíu. Og umfram allt með augum Krists

Gerist fljótlega
Ungmennahittingur - Piparkökukósý
Søndag, november 8, 2026 15:00
Á sunnudaginn verður ungmennahittingur í Ólafíustofu, Pilestredet park 20. ❄️?❄️ Piparkökukósý og samvera. Endilega sendið póst á bergrun@kirkjan.no ef að þið viljið að leiðtogarnir hitti unglingana á lestarstöð og verði samferða þeim til og frá Ólafíustofu. Hlökkum til að sjá ykkur
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, november 12, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Aðventuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi 2026
Søndag, november 22, 2026 15:00
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00. Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning. Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna. Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið. Hlý og kærleiksrík aðventustemning. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Powered by Cornerstone