Hugleiðing og bæn frá sr. Lilju. ![]()
Í dag 1.nóvember er Allrasálnamessa eða Allraheilagramessa. Þessi dagur er víða um heim haldinn hátíðlegur meðal kristinna manna. Þetta er dagur minninganna, dagur þakklætisins. Dagur sorgarinnar en umfram allt dagur vonarinnar.
Á allraheilagramessu minnumst við þeirra fjölmörgu sem hafa varðveitt og miðlað trúnni í gegnum kynslóðirnar. Við minnumst ekki aðeins stórra nafna kirkjusögunnar, heldur einnig þeirra sem voru hluti af lífi okkar og skildu eftir sig spor í hjörtum okkar. Spor sem tíminn getur ekki afmáð. Sum þeirra sem við minnumst í dag kvöddu okkur fyrir löngu. Önnur eru nýfarin frá okkur. Við höfum öll ólíkar minningar og ólika reynslu. Sum okkar bera með sér djúpan söknuð. Aðrir finna fyrst og fremst þakklæti fyrir langa og góða samleið. Og mörg okkar finna hvort tveggja í senn.
Sorg og þakklæti geta átt heima í sama hjarta. Við getum saknað og samt brosað yfir góðri minningu. Við getum grátið og samt verið þakklát. Við getum fundið fyrir tómleika og samt átt von. Þannig er kærleikurinn. Dauðinn getur kollvarpað tilveru okkar en aldrei tekið frá okkur kærleikann. Þann kærleika sem tengir okkur við þau sem við höfum misst. Kærleikurinn heldur áfram að lifa í okkur, í minningunum, í gildum sem við berum áfram og í því hvernig við mætum öðru fólki. Besta leiðin til að heiðra minningu látinna ástvina er ekki aðeins að minnast þeirra með þakklæti, heldur líka að láta kærleikann sem þau gáfu okkur verða öðrum til blessunar.
Það er falleg hefð á allra heilagra messu að kveikja á kertum i minningu látins ástvinar. Logar kertanna eru ekki aðeins ljós fortíðar heldur einnig ljós vonar. Kristin trú byggist á þeirri von að dauðinn eigi ekki síðasta orðið heldur treystum við því að líf okkar sé í höndum Guðs, bæði hér í þessum heimi og handan dauðans.
Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja.“
Megi ljós vonar lýsa okkur í gegnum sorg og missi. Megi það gefa okkur styrk í daglegu lífi og minna okkur á að við erum, í lífi og dauða, umvafin kærleika Guðs.
Bæn
Guð kærleikans og lífsins. Við komum fram fyrir þig í dag með minningar okkar, þakklæti og söknuð.
Við þökkum þér fyrir þau sem gengið hafa á undan okkur. Fyrir líf þeirra, kærleika, vináttu og allt það góða sem þau gáfu okkur. Hjálpa okkur að varðveita góðar minningar og finna styrk í þeirri von sem þú hefur gefið okkur fyrir Jesú Krist.
Við biðjum þig að vera nálægur öllum þeim sem syrgja. Hugga þau sem sakna og veit þeim frið sem bera þunga sorg í hjarta sínu. Í þínar hendur felum við þau sem við elskum og þau sem við söknum.
Í Jesú nafni.
Amen.
