Norræn hátíðarguðsþjónusta. ![]()
Nú standa yfir hinir árlegu Margrétardagar hjá norska hernum og af því tilefni bauð herinn til norrænnar hátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 20.september.
Guðsþjónustan er samvinnuverkefni norrænu kirknanna í Noregi. Þátttakendur og glæsilegir fulltrúar Íslands og Íslensku kirkjunnar í Noregi voru þau hr.Ragnar G.Kristjánsson og frú Þórunn Scheving Elíasdóttir ný sendiherrahjón í Noregi, ásamt staðgengli sendiherra, hr.Bjarka Þórssyni og dóttur hans Brynhildi.
