Skráning í Íslensku kirkjuna í Noregi

Vegna þeirrar umræðu sem komið hefur upp í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum í Noregi um skráningu einstaklinga í einstök trúfélög vill Íslenska kirkjan í Noregi koma eftirfarandi á framfæri;

Allar ábendingar frá einstaklingum sem telja sig hafa verið skráða í kirkjuna án samþykkis verða teknar alvarlega.

Kirkjan mun hefja ítarlega yfirferð á félagaskrá sinni og skráningarferli til þess að tryggja að öll skráning einstaklinga sé í samræmi við gildandi reglur í Noregi.  

Við viljum jafnframt leggja áherslu á að einstaklingar sem hafa spurningar eða athugasemdir varðandi skráningu sína hjá Íslensku kirkjunni í Noregi geta haft samband við kirkjuna á netpóstfangi kirkjan@kirkjan.no.  Brugðist er við öllum slíkum erindum. 

Á heimasíðu Brønnøysundregister https://www.brreg.no/ er hægt að sjá hvort og í hvaða trúfélag fólk er skráð með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum/ BankId á Mine sider.

Við þökkum þeim sem hafa vakið athygli okkar á málinu og munum fylgja því eftir..

Fyrir hönd Íslensku kirkjunnar í Noregi
sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir

Gerist fljótlega
Krílakaffi í Ólafíustofu
Torsdag, oktober 8, 2026 11:00
Krílakaffi í Ólafíustofu einn fimmtudag í mánuði. Notaleg stund og ljúf stund fyrir börn og fullorðna þar sem tilvalið er fyrir foreldra og forráðamenn, afa og ömmur, eða aðra sem eru að gæta ungra barna, að koma og spjalla saman, syngja með litlu krílunum og eiga gæðastund í góðu samfélagi. Í Ólafíustofu er ágætis aðstaða fyrir krílin, skiptiborð, matarstólar, stórt leikteppi, leikföng og bækur en síðast en ekki síst hin krílin sem er svo gaman að hitta. ( ...svo erum við líka með sófa fyrir fullorðna fólkið) Boðið er upp á léttar veitingar og kaffi. Húsið opnar kl. 11. Verið öll hjartanlega velkomin!!
Ungmennahittingur í Ólafíustofu
Søndag, oktober 11, 2026 16:00
Við ætlum að hittast í Ólafíustofu ( Pilestredet park 20, 0176 Osló ) sunnudaginn 11.október kl 16:00 og baka saman pizzur! Þar verður góð tónlist, góður félagsskapur og ljúffengar pizzur. Frábær staður til að kynnast nýjum krökkum, tala íslensku og brjóta upp vikuna? Hvað er uppáhalds áleggið þitt????? Það er sjálfsagt að fylgja krökkunum til og frá lestarstöð. Sendið Bergrúnu póst ef þið viljið skipuleggja það til bergrun@kirkjan.no. Einnig pössum við vel upp á að taka vel á móti öllum. Þannig ekki hika við að mæta þó þú sért ein/einn/eitt. Hlökkum til að sjá ykkur!
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, oktober 15, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Powered by Cornerstone