Brot úr fallegri hugvekju sem sr. Lilja var með fyrir Gæðastundir í konungskaffinu fyrr i mánuðinum ![]()
Haraldur konungur tilheyrði kynslóð þar sem kristin trú og kirkjan voru sjálfsagður hluti af samfélaginu. Í konungstíð hans breyttist Noregur mikið. Samfélagið varð fjölbreyttara og fleiri trúarbrögð festu hér rætur. Þeim fjölgaði sem skilgreindu sig utan trúfélaga og tengsl ríkis og kirkju breyttust verulega. Í fjölbreyttu samfélagi getur trú auðveldlega orðið að einhverju sem skilur fólk að en í öllum þessum breytingum tókst Haraldi að brúa hinn gamla og hinn nýja Noreg. Haraldur konungur varðveitti sína kristnu trú og tengsl sín við Norsku kirkjuna í stað þess að afgreiða kirkjuna sem eitthvað sem heyrði fortíðar til. Kristin trú skipaði mikilvægan sess í lífi konungsins en hann sýndi einnig fram á mikilvægt hlutverk kirkjunnar í samfélaginu þegar áföll dundu fyrir þjóðina. Haraldur hafði sérstaka hæfileika til að höfða til ólíkra menningarheima. Þrátt fyrir ólíkan uppruna og bakgrunn, ólíkar skoðanir og ólíka trú fékk hann okkur til að finna að við tilheyrum öll sama samfélagi og séum ein þjóð. Hann hvatti kirkjuna til að starfa með ólíkum trúfélögum og lagði áherslu á gagnkvæman skilning milli ólíkra trúarbragða. Boðskapur konungsins var einfaldur: Þegar við kynnumst trú, menningu og lífi hvert annars sjáum við betur það verðmæta sem hvert og eitt okkar getur lagt til samfélagsins. Hin þekktu og sterku ummæli Haralds „ Noregur er þið. Noregur er við“ segja í raun. Það er pláss fyrir þig hér. Nákvæmlega eins og þú ert. Kannski er það einmitt ein fallegasta myndin af því samfélagi sem Haraldur konungur vildi stuðla að. Samfélagi þar sem við þurfum ekki öll að vera eins til þess að tilheyra hvert öðru. Haraldur var konungur alls fólksins. Hann var ekki aðeins þjóðhöfðingi heldur var hann í hugum margra tákn um öryggi og samstöðu. Þegar við sem kirkja horfum yfir líf og þjónustu Haralds konungs getum tekið með okkur þrjú einföld orð: Trú, virðing samfélag. Trú sem við megum standa örugg í. Virðing fyrir þeim sem eru öðruvísi en við og samfélag sem við tilheyrum öll. Þetta er arfleifð sem við getum tekið með okkur og haft að framtíðarsýn kirkjunnar. Að við séum kirkja sem þorir að tala um Guð og vitna um Jesú Krist en jafnframt vera kirkja sem hlustar og tekur á móti fólki með ólíka lífsýn og skoðanir án fordóma. Kirkja þar sem fólk finnur að það er velkomið, séð og heyrt og að við tilheyrum hvert öðru.
Við minnumst Haraldar konungs með þakklæti fyrir hlýju hans, húmorinn og þá ró sem einkenndi hann ásamt áhuga og umhyggju fyrir mönnum og málefnum. Við þökkum þjónustu hans við land og þjóð, fyrir virðingu hans fyrir kirkjunni og kristinni trú og fyrir þann mikilvæga boðskap að sterk eigin sannfæring og virðing fyrir öðrum geti farið saman.
Guð blessi minningu Haralds konungs.

