Elsa Þórðardóttir 90 ára

 

Elsku Elsa okkar fagnaði heilum 90 árum  þann 18.september. Elsa er mjög virk í bæði kirkjustarfinu og félagsstarfi Íslendinga í Noregi.

Við tókum saman nokkrar skemmtilegar myndir af Elsu úr starfinu en hún var meðal annars Fjallkonan árið 2023 á 17.júní hátíðarhöldunum okkar og Íslendingafélagið í Oslo.

Til hamingju með afmælið. 👑❤️

Elsa Þórðardóttir 90 ára Elsa Þórðardóttir 90 ára Elsa Þórðardóttir 90 ára Elsa Þórðardóttir 90 ára Elsa Þórðardóttir 90 ára Elsa Þórðardóttir 90 ára Elsa Þórðardóttir 90 ára Elsa Þórðardóttir 90 ára

 

Gerist fljótlega
Handavinnuhittingur í Ólafíustofu
Torsdag, september 24, 2026 18:00
Taktu fram prjónana, heklunálina eða annað handverk, nú eða bara kjaftavaðalinn og vertu með okkur í notalegri stemningu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo. Húsið opnar kl 18:00. Léttar veitingar í boði. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Krílakaffi í Ólafíustofu
Torsdag, oktober 8, 2026 11:00
Krílakaffi í Ólafíustofu einn fimmtudag í mánuði. Notaleg stund og ljúf stund fyrir börn og fullorðna þar sem tilvalið er fyrir foreldra og forráðamenn, afa og ömmur, eða aðra sem eru að gæta ungra barna, að koma og spjalla saman, syngja með litlu krílunum og eiga gæðastund í góðu samfélagi. Í Ólafíustofu er ágætis aðstaða fyrir krílin, skiptiborð, matarstólar, stórt leikteppi, leikföng og bækur en síðast en ekki síst hin krílin sem er svo gaman að hitta. ( ...svo erum við líka með sófa fyrir fullorðna fólkið) Boðið er upp á léttar veitingar og kaffi. Húsið opnar kl. 11. Verið öll hjartanlega velkomin!!
Ungmennahittingur í Ólafíustofu
Søndag, oktober 11, 2026 16:00
Við ætlum að hittast í Ólafíustofu ( Pilestredet park 20, 0176 Osló ) sunnudaginn 11.október kl 16:00 og baka saman pizzur! Þar verður góð tónlist, góður félagsskapur og ljúffengar pizzur. Frábær staður til að kynnast nýjum krökkum, tala íslensku og brjóta upp vikuna? Hvað er uppáhalds áleggið þitt????? Það er sjálfsagt að fylgja krökkunum til og frá lestarstöð. Sendið Bergrúnu póst ef þið viljið skipuleggja það til bergrun@kirkjan.no. Einnig pössum við vel upp á að taka vel á móti öllum. Þannig ekki hika við að mæta þó þú sért ein/einn/eitt. Hlökkum til að sjá ykkur!
Powered by Cornerstone