Takk fyrir dásamlega hausthátíð í Sandefjord ![]()
![]()
![]()
Við tókum púlsinn á samfélaginu í Sandefjord hvað væri það dýrmætasta við kirkjustarfið þar. Það stóð ekki á svörunum sem voru meðal annars íslenskt samfélag, menning, tónlist, samvera, ný tengsl, fjölskylda að heiman, kærleikur og andleg næring. Þessi lýsingarorð umvefja heldur betur þá stemmingu sem var á hausthátíðinni í dag. Takk fyrir stundina ![]()
