Verið hjartanlega velkomin/n í Krílakaffi í Ólafíustofu í haust.
Við opnum húsið fyrir litlu yndislegu krílin og þeirra fylgifiska, eigum notalega stund saman við matarborðið og syngjum svo ljúfa söngva saman.
Við byrjum alltaf kl. 11 og vonum að sem flestir komi á þessar yndislegu stundir, vert að nefna að þær seim eiga von á sér hafa oft verið að mæta líka og eru auðvitað hjartanlega velkomnar eins og öll.
Í Ólafíustofu er ágætis aðstaða fyrir krílin, skiptiborð, matarstólar, stórt leikteppi, leikföng og bækur en síðast en ekki síst hin krílin sem er svo gaman að hitta.
( ...svo erum við líka með sófa fyrir fullorðna fólkið)
Boðið er upp á léttar veitingar og kaffi.
Dagsetningar fyrir haustið eru eftirfarandi:
3. september
8. október
5. nóvember.
Sjáumst í Krílakaffi.
