Handavinnuhittingar í Ólafíustofu

Handavinnuhittingar í Ólafíustofu.

Við förum af stað með handavinnuhittinga í Ólafíustofu nú strax í ágúst, enda ekki eftir neinu að bíða. Við erum allavega búin að bíða spennt í allt sumar.

Taktu nú fram prjónana, heklunálina eða það handverk sem þér dettur í hug, það má líka bara koma og njóta þessa að vera með okkur í notalegri stemningu. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti öllum sem koma til okkar og viljum að sem flestum líði vel.

Handavinnuhittingar verða eftirfarandi fimmtudaga í haust kl. 18 en við erum samt oft mætt fyrr og sjáfsagt að koma inn ef það er einhver inni:

27.ágúst

24.september

22.október

19.nóvember (Aðventukransagerð)

Vð bjóðum upp á kaffi og léttar veitingar.

Sjáumst!

Gerist fljótlega
Aðventuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi 2026
Søndag, november 22, 2026 15:00
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00. Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning. Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna. Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið. Hlý og kærleiksrík aðventustemning. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Jólahátíð í Sandefjord
Søndag, november 29, 2026 14:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Powered by Cornerstone