Litla Laffí - spennandi haust 2026

Spennandi tækifæri með barnakórnum Litla Laffí.

Fyrsta æfing haustsins er á sunnudaginn á hausthátíðinni á Sognsvann.

Nú er tækifæri til að vera með í spennandi tónleikaverkefni með barnakórnum okkar Litlu Laffí.

Öll börn 5-14 ára

velkomin!

Fyrirspurnir: rebekka@kirkjan.no eða í síma 94863356

Litla Laffí - spennandi haust 2026 Litla Laffí - spennandi haust 2026
Gerist fljótlega
Hausthátíð við Sognsvann í Osló
Søndag, august 30, 2026 13:00
Hausthátíð í Oslo Við hittumst á Sognsvann kl 13:00 þann 30. ágúst í huggulegu haustskapi. Haustföndursmiðjur, sunnudagaskóli, útileikjastöðvar, samvera og notalegheit eru þema dagsins. Fullkomin dagur fyrir alla fjölskylduna til að búa til dásamlegar haustminningar saman í góðum félagsskap. Íslendingafélagið í Oslo sér um pylsuveislu fyrir alla þá sem mæta. Við hvetjum ykkur að taka með teppi til þess að sitja á. Við hittumst hjá hliðinu við aðal sjoppuna á Sognsvann. Við verðum með íslensku fánana við upplýsingaskiltin þar. Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll.
Ungmennahittingur við Sognsvann, Osló
Søndag, august 30, 2026 15:00
Fyrsti ungmennahittingur haustsins verður þann 30 ágúst við Sognsvann? Natalía, Sigríður og Bergrún taka hressar á móti öllum? Við hvetjum öll til að koma hvort sem þið séuð að koma í fyrsta skipti eða hafið komið áður??‍?? Við munum fara í allskyns útileiki, boðhlaup, boltaleiki og fleira. Það verður eitthvað fyrir alla! Klæðum okkur eftir veðri⛅️ og sjáumst hress á Sognsvann✨
Handavinnuhittingur í Ólafíustofu
Torsdag, september 24, 2026 18:00
Taktu fram prjónana, heklunálina eða annað handverk, nú eða bara kjaftavaðalinn og vertu með okkur í notalegri stemningu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo. Húsið opnar kl 18:00. Léttar veitingar í boði. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Powered by Cornerstone