Hjónavígsla

Hjónavígsla í Ólafíustofu ? Eða í kirkju ? nú eða heima í stofu ?

Endilega hafið samband við sr. Lilju Kristínu.

Það er hægt að senda henni póst á lilja@kirkjan.no

Kirkjuleg hjónavígsla er helgiathöfn þar sem brúðhjón gefast hvort öðru og lofa að standa saman í gleði og sorg, styðja hvort annað, deila áhyggjum sínum og tvöfalda gleðina!

Þar mætast tveir einstaklingar á jafnréttisgrundvelli og heita því að vera hvor öðrum trúr, elska og virða hvor annan, og eiga, njóta og taka saman á móti yndi og erfiðleikum lífsins.

Kirkjuleg hjónavígsla fer alla jafnan fram í kirkju en hægt er að fá leyfi til að hafa athöfnina heima eða úti undir berum himni.

Hvað þarf að gera?

Hafa samband við prestinn og ræða stað og stund, uppbyggingu og yfirbragð athafnarinnar.

Útvega hjúskaparstöðuvottorð hjá Skatteetaten (https://www.skatteetaten.no/skjema/provingsattest/)

Hjónaefni þurfa að útvega sér hjónavígsluvottorð (no. prøvingsattest) hjá skattayfirvöldum í Noregi (no. skatteetaten) ef þau hafa verið búsett í landinu lengur en 6 mánuði en annars þarf að útvega hjónavígsluvottorð frá því landi sem búið var í og láta fylgja umsókn til skattayfirvalda hér.

Hjónavígsla getur ekki farið fram ef hjónavígsluvottorð berst ekki presti fyrir athöfna.

Gerist fljótlega
Allra heilagra messa og Hrekkjavaka í Kristiansand
Lørdag, oktober 24, 2026 13:00
Verið hjartanlega velkomin í Hrekkjavökufjör og Allra heilagra messu í Kristiansand þann 24. október kl. 13.00. Við byrjum á líflegum sunnudagaskóla og svo verður samvera í anda hrekkjavökunnar á eftir. Hrekkjavökuboðið passar fyrir börn á öllum aldri. Öllum frjálst að mæta í Hrekkjavökubúningum ef áhugi er fyrir hendi. Pálínuboð á eftir. ?❤️ Hlökkum til að sjá ykkur.
Ólafíuhátíð
Søndag, oktober 25, 2026 14:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Ólafíuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi. Að þessu sinni verðum við með messu í Bøler kirkju kl 14:00 þann 25. október. Ískórinn sér um að leiða sönginn. Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir stundina og Íslendingafélagið sér um Pálínuboðið á eftir. Hugguleg stemning í kirkjukaffinu þar sem hægt verður að tylla sér niður og eiga gott spjall. Þar fer einnig fram fjáröflun fyrir Ólafíusjóð og verður tekið við frjálsum framlögum. Stundin er mjög fjölskylduvæn og öll hjartanlega velkomin. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Krílakaffi í Ólafíustofu
Torsdag, november 5, 2026 11:00
Krílakaffi í Ólafíustofu einn fimmtudag í mánuði. Notaleg stund og ljúf stund fyrir börn og fullorðna þar sem tilvalið er fyrir foreldra og forráðamenn, afa og ömmur, eða aðra sem eru að gæta ungra barna, að koma og spjalla saman, syngja með litlu krílunum og eiga gæðastund í góðu samfélagi. Í Ólafíustofu er ágætis aðstaða fyrir krílin, skiptiborð, matarstólar, stórt leikteppi, leikföng og bækur en síðast en ekki síst hin krílin sem er svo gaman að hitta. ( ...svo erum við líka með sófa fyrir fullorðna fólkið) Boðið er upp á léttar veitingar og kaffi. Húsið opnar kl. 11. Verið öll hjartanlega velkomin!!
Powered by Cornerstone