28. ágúst 2026

Íslenska kirkjan lýsir yfir djúpri sorg vegna andláts Haralds V. konungs. Fyrir hönd safnaðarins sendum við konungsfjölskyldunni og öllum sem syrgja samúðarkveðjur okkar og biðjum þeim guðsblessunar.

Hugur okkar er hjá þeim sem syrgja. Berum þau á bænarörmum,

kveikjum ljós og sameinumst í bæn.

Eilífi Guð,

Við komum til þín í sorg og þakklæti.

Við þökkum þér fyrir Harald konung, fyrir langa ævi hans,

trúa þjónustu hans og umhyggju og kærleika sem hann sýndi fólki sínu.

Við þökkum þér fyrir vonina sem hann færði, fyrir orðin sem sameinuðu og fyrir reisnina sem hann sýndi í gleði og mótlæti.

Haltu þinni vernandi hendi yfir drottningunni, konungsfjölskyldunni og öllum sem syrgja. Umvef þau kærleika þínum og gef þeim huggun, styrk og

frið á þessum erfiða tíma.

Blessaðu norska þjóð og þau öll er hér búa. Hjálpaðu okkur að standa saman í þakklæti, virðingu og von. Gef að við fáum heiðrað líf og minning konungsins með því að annast hvert annað og leita þess sem skapar frið, réttlæti og samfélag.

Eilífi Guð

Við felum líf og minningu Haralds konungs í þínar hendur,

í trausti á kærleika þinn sem er sterkari en ótti okkar og sorg.

Gefðu okkur öllum styrk til að takast á við dagana framundanþ

Við biðjum þessa í Jesú nafni. Amen

📸 Kongehuset

Gerist fljótlega
Allra heilagra messa og Hrekkjavaka í Kristiansand
Lørdag, oktober 24, 2026 13:00
Verið hjartanlega velkomin í Hrekkjavökufjör og Allra heilagra messu í Kristiansand þann 24. október kl. 13.00. Við byrjum á líflegum sunnudagaskóla og svo verður samvera í anda hrekkjavökunnar á eftir. Hrekkjavökuboðið passar fyrir börn á öllum aldri. Öllum frjálst að mæta í Hrekkjavökubúningum ef áhugi er fyrir hendi. Pálínuboð á eftir. ?❤️ Hlökkum til að sjá ykkur.
Ólafíuhátíð
Søndag, oktober 25, 2026 14:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Ólafíuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi. Að þessu sinni verðum við með messu í Bøler kirkju kl 14:00 þann 25. október. Ískórinn sér um að leiða sönginn. Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir stundina og Íslendingafélagið sér um Pálínuboðið á eftir. Hugguleg stemning í kirkjukaffinu þar sem hægt verður að tylla sér niður og eiga gott spjall. Þar fer einnig fram fjáröflun fyrir Ólafíusjóð og verður tekið við frjálsum framlögum. Stundin er mjög fjölskylduvæn og öll hjartanlega velkomin. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Krílakaffi í Ólafíustofu
Torsdag, november 5, 2026 11:00
Krílakaffi í Ólafíustofu einn fimmtudag í mánuði. Notaleg stund og ljúf stund fyrir börn og fullorðna þar sem tilvalið er fyrir foreldra og forráðamenn, afa og ömmur, eða aðra sem eru að gæta ungra barna, að koma og spjalla saman, syngja með litlu krílunum og eiga gæðastund í góðu samfélagi. Í Ólafíustofu er ágætis aðstaða fyrir krílin, skiptiborð, matarstólar, stórt leikteppi, leikföng og bækur en síðast en ekki síst hin krílin sem er svo gaman að hitta. ( ...svo erum við líka með sófa fyrir fullorðna fólkið) Boðið er upp á léttar veitingar og kaffi. Húsið opnar kl. 11. Verið öll hjartanlega velkomin!!
Powered by Cornerstone