Í gær voru 9 ungmenni fermd við hátíðlega athöfn í Háteigskirkju. Fermingarbörnin voru umvafin fjölskyldu og vinum og var kirkjan fullsetin. Söngkonurnar Halldóra Sólveig Einarsdóttir og Sigrún Valdís Kristjánsdóttir fluttu kirkjugestum hugljúfa tóna og leiddu sálmasönginn. Organisti var Gróa Hreinsdóttir og prestur sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir.
Íslenska Kirkjan í Noregi óskar fermingarbörnunum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju.
Við fengum þessar dásamlegu myndir sendar frá fallega fermingardeginum í Háteigskirkju. ![]()
Með þessum ljúfu myndum óskum við ykkur gleðilegs sumars. Skrifstofan er lokuð í júlí.
Sjáumst aftur í starfinu í ágúst.
Róbert Elías Óskarsson

