Kvennakvöld Ólafíusjóðs 2026 - Konur eru konum bestar

Velkomnar á kvennakvöld Ólafíusjóðs 2026!

Ólafíusjóður í samstarfi við Sendiráð Íslands í Noregi býður til kvennakvölds í embættisbústaðnum á Aker Brygge! 
Konur eru konum bestar!

Kvennakvöldið er einstakt tækifæri til þess að kynnast öðrum íslenskum konum í Noregi og efla þannig tengslanet sitt í jákvæðu og uppbyggilegu andrúmslofti. 

Við munum fá til okkar frábæra gesti og í gegnum örsögur fáum við innsýn í líf þeirra og starf hér í Noregi.

Auk þess verður sagt frá kvenskörungnum og heimskonunni Ólafíu Jóhannsdóttur, sem er þjóðkunn í Noregi fyrir störf sín í þágu kvenna í byrjun síðustu aldar.

Það verða léttar veitingar í boði hússins. Allur ágóði af miðasölu rennur í Ólafíusjóð og auk þess er hægt að leggja fram frjáls framlög. 

Staður: Sendiráðsbústaðurinn á Aker Brygge, 
Tímasetning: 4. júní 16.30-19.00. 
Miðaverð 275 NOK

Hlekkur á miðasölu!

https://olafiusjodur.hoopla.no/event/1069482756

Rými er takmarkað og því mælst til að tryggja sér miða í tæka tíð. 

Sjáumst hressar!

Gerist fljótlega
Ungmennahittingur í Ólafíustofu
Søndag, oktober 11, 2026 16:00
Við ætlum að hittast í Ólafíustofu ( Pilestredet park 20, 0176 Osló ) sunnudaginn 11.október kl 16:00 og baka saman pizzur! Þar verður góð tónlist, góður félagsskapur og ljúffengar pizzur. Frábær staður til að kynnast nýjum krökkum, tala íslensku og brjóta upp vikuna? Hvað er uppáhalds áleggið þitt????? Það er sjálfsagt að fylgja krökkunum til og frá lestarstöð. Sendið Bergrúnu póst ef þið viljið skipuleggja það til bergrun@kirkjan.no. Einnig pössum við vel upp á að taka vel á móti öllum. Þannig ekki hika við að mæta þó þú sért ein/einn/eitt. Hlökkum til að sjá ykkur!
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, oktober 15, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Hausthátíð í Bergen
Lørdag, oktober 17, 2026 12:30
Hausthátíð í Bergen. Verið hjartanlega velkomin á hausthátíð í Bergen. Þegar laufin eru farin að falla til jarðar og hitastigið úti fer kólnandi. Er notalegt að búa til huggulegar haustminningar saman. Í boði verður söngur og gleði sem Sönghópurinn Björgvin heldur utan um, notalegt spjall og gott samfélag. Það verður heitt á könnunni og smá kruðerí með því. Þema dagsins er haustið ? Frábær stund til að hitta aðra og rækta tengslin við samlanda. Staðsetning: Bergen inkluderingssenter Landåssvingen 15, 5096 Bergen, Norge
Powered by Cornerstone