Sjómannadagurinn í Tromsø 2026

Sjómannadagshátíð í Tromsø

Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Tromsø þann 6. júní 2026.

Dagskráin hefst með ljúfri og líflegri fjölskyldumessu í Grønnåsen kirkju kl 13:00, sem sr Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir.

Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á pokahlaup, andlitsmálningu og skapandi föndurhorn, gleði og góða samveru, og að sjálfsögðu kaffihlaðborð og pylsupartí í samstarfi við Íslendingafélagið Hrafnaflóka. 

Alvöru íslensk hátíðarstemmning ❤

Kökur og góðgæti mega gjarnan koma með ykkur á sameiginlegt kaffihlaðborð. Pylsur og meðlæti, drykkir og kaffi verða á staðnum í boði kirkjunnar og Hrafnaflóka.

Hlökkum til að halda sjómannadaginn hátíðlegan!

Verið hjartanlega velkomin!

Powered by Cornerstone