Íslendingafélagið í Osló og Íslenska kirkjan í Noregi bjóða ykkur öll hjartanlega velkomin á hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga, 17. júní, en þau fara fram þann 13. júní 2026 í Bøler kirkju í Osló.
Dagurinn hefst með hátíðarguðsþjónustu í Bøler kirkju kl.13 og á eftir verður skrúðganga og hátíðarhöld bæði úti og inni með öllu sem tilheyrir. Fjallkonan les ljóð, flutt verður hátíðarræða, það verða í boði leikir fyrir unga og aldna, happdrætti og sameiginlegt kökuhlaðborð verður í hátíðarsal kirkjunnar.
Íslendingafélagið verður með sölu á íslenskum pylsum og allskonar íslensku góðgæti fyrir utan kirkjuna og allir í stuði
Skrúðagangan fer frá kirkjunni eftir messuna og eftir skrúðgöngu hefst dagskrá á planinu fyrir framan kirkjuna.
Verið öll hjartanlega velkomin og við hlökkum til að sjá ykkur
