Útilegufjör í Knattholmen 2026

Takið frá helgina 19. - 21.júní fyrir útilegufjör kirkjunnar árið 2026 í Knattholmen. 

Við bjóðum upp á dagskrá frá morgni til kvölds þann 20.júní.

Fjörið hefur síðustu ár heppnast frábærlega og margir sem hafa skemmt sér stórkostlega.

Leikir og fjör fyrir stóra og smáa, hópefli, skapandi smiðjur, fáránleikar, spurningakeppni, brekkusöngur, varðeldur og sykurpúðar á báli, kvöldvaka og hópefli fyrir alla fjölskylduna.

 

Fyrir þá sem vilja vera alla helgina er gott tjaldsvæði nálægt svæðinu og möguleiki á því að panta gistingu innandyra. 

Hér er skráning í Útilegufjör!!

Knattholmen er staðsett í Sandefjord og er hluti af eyjunni Natholmen. KFUK-KFUM reka glæsilegar sumarbúðir á þessu svæði og aðstæður til fyrirmyndar. Fallegar strendur, möguleikar til þess að veiða, bátaleiga, frísbígólf, klifur, fótboltavöllur, blakvöllur og körfuboltakörfur, góð aðstaða fyrir hlaupahjól og hjól. 

Það er úr mörgu að velja og dásamlegt að eyða helginni þarna með góðum vinum. 

Boðið verður upp á kanóa til þess að sigla á vatninu. 

Ekki verður boðið upp á sameiginlegar máltíðir.

Börn eru á ábyrgð sinna forráðamanna.
Bátaleigan er á eigin ábyrgð.

Ölvun og neysla annarra
vímuefna er óheimil.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Gerist fljótlega
Aðventuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi 2026
Søndag, november 22, 2026 15:00
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00. Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning. Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna. Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið. Hlý og kærleiksrík aðventustemning. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Jólahátíð í Sandefjord
Søndag, november 29, 2026 14:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Powered by Cornerstone