Aðalfundagerð 2024

 

Aðalfundur Íslensku kirkjunnar í Böler kirkju í Ósló (og bein útsending á Zoom)

17.03.2024 kl. 15:10

Dagskrá aðalfundar

1. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

3. Skýrsla formanns

4. Skýrsla stjórnar

5. Skýrsla sóknarprests

6. Fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram

7. Kosning í safnaðarstjórn og varastjórn

8. Tillögur

9. Kosning í kjörnefnd og aðrar nefndir

10. Önnur mál

1. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað

Hjörleifur Valsson byrjar á að kynna stjórnina og kannar hvort að löglega sé til fundar boðað.

Enginn gerir athugasemd við fundarboð.

2. Kosning fundarstjóra og fundarritara

Tillaga sett fram um Valdimar Örn Karlsson sem fundarstjóra – réttkjörinn

Tillaga sett fram um Jónínu M Arnórsdóttir sem fundarritara – réttkjörin

Fundarstjóri leggur til að sameina aðalfund kirkjunnar og Ólafíusjóðs og er það samþykkt. Fundarstjóri biður formann Ólafíusjóðs um að athuga hvort að löglega sé boðað til fundarins og eru engin mótmæli.

Hjörleifur leggur til að slá saman lið 3 og 4; skýrslu formanns og stjórnar. Samþykkt af fundarmönnum.

3 og 4. Skýrsla formanns og skýrsla stjórnar

Þegar litið er til baka til ársins 2023 kemur fyrst í hugann stolt. Stolt yfir öflugu og líflegu starfi, stolt yfir frábæru, mjög hæfu og skapandi starfsfólki, stolt yfir öllum þeim fjölbreyttu viðburðum sem haldnir eru á vegum kirkjunnar, stolt yfir að geta stutt við bakið á starfi Íslendinga um gervallan

Noreg, og ekki minnst stolt yfir meðlimum kirkjunnar sem hlúa að starfinu með því að taka þátt, vera til staðar og sýna starfinu væntumþykju með þátttöku og góðum orðum.

Á vordögum voru höfð formannsskipti innan stjórnar þegar Hjörleifur Valsson settist í sæti formanns en fráfarandi formaður Elín Soffía Pilkington í sæti meðstjórnanda.

Stjórnarfundir eru að jafnaði haldnir fyrsta miðvikudag hvers mánaðar að júlí undanskildum. Vinnufundir eru haldnir þess á milli eftir þörfum. Fundir fara yfirleitt fram á Teams.

Eftir erfiðleika undangenginna ára og ófullnægjandi reikningsfærslu og bókhaldsvinnu fyrri gjaldkera og bókhaldsaðila, þá erum við nú komin í góðar hendur hjá Knif Regnskap, sem gerir gjaldkera og skrifstofustjóra kleift að hafa fulla og góða yfirsýn yfir fjárreiður, leggja fyrir stjórn mánaðarlega, og okkar tengiliður hjá Knif heldur okkur á tánum og passar upp á að rútínur séu í réttum farvegi.

Á þessum aðalfundi leggur stjórn fram nauðsynlegar tillögur að lagabreytingum í þeim tilgangi að laga lög kirkjunnar betur að nútímanum og þeim breytingum sem orðið hafa á liðnum árum, en einnig til að koma nýju fyrirkomulagi þar sem aðalfundur ákveður upphæð þóknunar fyrir stjórnarsetu. Lagabreytingar þessar öðlast ekki gildi fyrr en eftir samþykkt tveggja aðalfunda.

Árið 2023 sendum við inn lista yfir 7577 meðlimi og fengum samþykkt framlag fyrir 5552. Þessi mismunur er alls ekki óeðlilegur og er mismunandi frá ári til árs.

Snemma árs 2023 fékk Íslendingafélagið í Ósló greiddan síðasta hluta veglegs styrks til endurbóta á Íslendingahúsinu í Norefjell. Var um að ræða heildarstyrk að upphæð 250 000 króna sem greiddur var út í nokkrum greiðslum á nokkurra ára tímabil. Á aðventuhátíð kirkjunnar í Ósló afhenti stjórn kirkjunnar íslendingafélaginu afmælisgjöf; Kitchen Aid hrærivél fyrir eldhúsið í Norefjell, og þótti það sérlega hagnýt gjöf. Í tilefni 100 ára afmælis íslendingafélagsins kom forseti Íslands herra Guðni Th. Jóhannesson til Óslóar og heimsótti hann einnig Ólafíustofu og naut þar hádegisverðar með starfsfólki og formanni.

Það er mikið gleðiefni að geta veitt kórum stuðning, en kirkjan greiðir hverjum fyrir sig 15 000 króna styrk á hverju ári. Að auki er greitt fyrir söng í guðsþjónustum og öðrum viðburðum á vegum kirkjunnar sem nemur 650 krónum á hvern söngvara allt að 7 800 krónum fyrir hvert skipti. Um er að ræða 4 kóra; Ískórinn, Kór Kjartans í Þrándheimi, Laffí og Íslendingakórinn í Bergen. Að auki er barnakórinn Litla Laffí rekinn af kirkjunni.

Á haustmánuðum ákvað stjórn að hækka framlag til Ólafíusjóðs og er það nú 130 000 krónur á ári. Mikilvægt er að halda vel utan um um sjóðinn sem hefur reynst mikilvægur styrktarsjóður í þágu þeirra sem af einhverjum ástæðum þurfa aðstoð.

Árið 2023 var einnig ár uppgjöra. Áfrýjunarmáli okkar ásamt sænsku og finnsku kirkjunum gegn hinu opinbera vegna niðurfellingar greiðslu meðlimagjalda í tengslum við breyttar reglur um skráningu lauk við Oslo Lagmannsrett og var ríkinu dæmt í vil. Eftir vangaveltur og ráðfæringar við lögfræðinga okkar var ákveðið að áfrýja málinu ekki frekar og er því nú lokið.

Annað mál var til lykta leitt í lok árs og er það mál fyrrum gjaldkera kirkjunnar sem kærður var í upphafi árs 2022 fyrir gróft fjármálamisferli. Rannsókn stóð yfir í rúmt eitt og hálft ár og féll dómur nú rétt fyrir jól. Hinn kærði var dæmdur í 16 mánaða fangelsi og til að greiða kirkjunni 3 325 606 krónur.

Stjórn hefur lagt mikla vinnu í að uppfæra kjör starfsmanna og laga starfshlutföll að hverri stöðu eftir umfangi. Fimm starfsmenn eru í föstu starfi; þrír í 100% stöðum, einn í 60% og einn í 15%. Að auki er fjöldi einstaklinga sem eru lausráðnir, listafólk sem veitir þjónustu sína og aðrir sem leggja kirkjunni

lið með starfsframlagi. Kirkjan nýtur einnig krafta ómetanlegra sjálfboðaliða á mörgum sviðum starfsins.

Á þessum aðalfundi munu tveir stjórnarmeðlimir ljúka fjögurra ára stjórnarsetu. Katla Sveinbjörnsdóttir gjaldkeri býður fram til áframhaldandi stjórnarstarfa. Elín Soffía Pilkington hefur hinsvegar ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram. Elín var formaður stjórnar á sérlega erfiðum tímum þegar upp komst um stórfelld fjársvik eins stjórnarmeðlims. Hún stýrði skútunni í höfn og var fulltrúi kirkjunnar við réttarhöldin. Við þökkum Elínu innilega fyrir góð störf og hennar miklu fórnfýsi í þágu kirkjunnar okkar og óskum henni alls góðs um alla framtíð. Með þessu lýkur skýrslu stjórnar.

Í lok ávarps afhenti Hjörleifur Valsson Elínu Soffíu Pilkington gjöf sem þakkarvott fyrir störf sín í stjórninni.

Skýrslu formanns má lesa í heild sinni í viðhengi.

5. Skýrsla sóknarprests

Safnaðarstarf árið 2023 var fjölbreytt og viðburðaríkt og það er fyrir mikið að þakka. Kjarnateymi kirkjunnar hélst óbreytt. Mikill fjöldi annars starfsfólk er ýmist í föstum verkefnum eða tekur að sér tilfallandi verkefni. Margir leiðtogar og ungleiðtogar hafa líka gert gríðarlega gott starf á árinu og allir þeir sem eru í liði með okkur og taka þátt í að byggja upp samfélagið okkar.

Messur og guðsþjónustur voru haldnar í Osló, Sandefjord, Kristiansand, Stavanger, Bergen, Þrándheimi og Preikestolen. Í Osló voru messur haldnar í Margaretakirkjunni, í Bøler kirkju og í Amerísku lúthersku kirkjunni. Sunnudagaskólinn var haldinn ýmist á sama tíma og messurnar eða í Ólafíustofu.

17. Júní hátíðin var haldin í Bøler og mætingin sló öll met en um 700 manns tóku þátt í deginum með okkur.

Öskugleði og Páskabrall var haldið á mörgum stöðum.

Jólamessurnar voru haldnar um allt land.

Skírnarathafnir, fermingarathafnir, hjónavígslur, minningarathafnir og útfarir voru haldnar á árinu sem leið. Mikil aukning varð í eftirspurn eftir samtölum og sálgæslu.

Fermingarfræðslan fer fram með mánaðarlegum fræðslutímum á netinu og tveimur námskeiðum sem fara fram í Åh stiftsgård í Svíþjóð. Vorið 2023 voru 27 fermingarbörn í hópnum. Um haustið 2023 voru 17 börn skráð til þátttöku í fermingarstarfinu.

Samstarf við kóra og tónlistarfólk hefur verið gefandi og gott. Gróa Hreinsdótttir hefur leikið á orgel í mörgum messum kirkjunnar síðustu ár en nú er hún flutt til Íslands. Við biðjum henni Guðs blessunar á nýjum vettvangi.

Samstarfsfundur sóknarnefnda og lykilfólks í íslensku söfnuðum á Norðurlöndunum fór fram 27.-29. Janúar.

Í Sandefjord og Kristiansand halda Margrét Ólöf og Grétar halda úti mánaðarlegum fjölskylduguðsþjónustum.

Í Þrándheimi var messa í mars og Jólahátíð í desember. Gott samstarf við Kór Kjartans og nú er Íslendingafélagið í sókn og góður andi í samfélaginu. Viljum gjarnan bæta við amk tveimur viðburðum á ári.

Safnaðarstarf í Ósló fer fram reglubundið safnaðarstarf. Krílakaffi, Gæðastundir og Handavinnukvöld, ungmennahittingar og sunnudagaskóli.

Gæðastundir fara fram annan fimmtudag í hverjum mánuði. Farið var í velheppnaða haustferð í Norefjell í september.

Krílakaffi er einu sinni í mánuði. Krílasálmar, söngstundir með áherslu á skynjun og örvun fyrir ungabörn er svo að festa sig í sessi sem fastur liður í Krílakaffinu.

Unglingahittingar fóru fram annan hvern föstudag 2023. Hittingarnir verða færðir yfir á sunnudagseftirmiðdaga í þeirri von að sá tími henti betur fyrir fleiri.

Barnakórinn Litla Laffí fór af stað sem hliðarverkefni sönghópsins Laffí. Barnakórinn miðlar bæði íslenskri tungu og virkjar börn til þátttöku í kirkjunni svo það er til mikils að vinna að styðja við vaxtarsprotann í barnakórnum. Börnin eru á aldrinum 3 til 14 ára.

Handavinnukvöldin hafa slegið í gegn og er alltaf fullt hús á þessum kvöldum.

Gönguferðir og bálkvöld hafa verið haldin þegar það passar inn í dagskrá og árstíma. Fólk á aldrinum 20-90 ára mætir í útivistarsamverurnar.

Útikirkjan: Sunnudagaskólinn hittist yfir báli við Sognsvann í snjó og frosti, ungmennin fóru í eyjahopp og flotgufu, handavinnuhópurinn hittist í pikknikk í Frognerparken, guðsþjónusta var haldin á Preikestolen, og vorhátíðir haldnar utan dyra í Stavanger, Bergen og Sandefjord, auk þeirra sem mæta í göngur og bálkvöld.

Útilegan í Rokosjøen hefur sameinað útivist og samveru í trú, von og kærleika. Hún fór fram í ágúst að vanda.

Menning: Síðustu ár höfum við lagt áherslu á að styðja og styrkja menningarstarf á fjölbreyttan hátt, með stuðningi við íslenska tónlistarmenn og tónleika, fyrirlestrum á netinu, handverksnámskeiðum, tónleikum, barnakórnum, tónlistarsmiðju, myndlist fyrir unglingana til að nefna eitthvað. Að deila íslenskum hefðum og eiga samfélag í hrynjanda ársins er mikilvægt fyrir Íslendingana sem búa fjarri heimahögunum.

Barnabókasafnið Lóan var opnuð í Ólafíustofu Í október síðastliðnum.

Janúartónleikar Laffí og Ískórsins voru haldnir í samstarfi við kirkjuna sem lagði til. Tríó Frigg var með tónleika í Sandefjord og Oslo, með styrk frá Norges Kristne Råd.

Ólafíuhátíð var með veglegasta móti í Sagene kirkju. Dúo Norðfólk, Laffí og Litla Laffí héldu metnaðarfulla tónleika, sunnudagaskóli var á sama tíma, barnafataskiptimarkaður í hliðarrými og gríðarlega glæsilegt kaffi hlaðborð á vegum Íslendingafélagsins í Osló. Mæting fór fram úr björtustu vonum, yfir 200 manns.

Ísdagar Íslendingafélagsins hittu á sömu daga og Ólafíuhátíð en við unnum markvisst að því að afstýra árekstrum með góðri samvinnu við stjórn Íslendingafélagsins í Osló, sem gerði þessa daga að gefandi og viðburðaríkum dögum.

Aðventuhátíð fór fram í Ris kirkju í Osló. Lay Low kom frá Íslandi með ljúfa tóna og yndislega nærveru, barnakórinn Litla Laffí og Ískórinn komu fram og sendiherrann Högni Kristjánsson hélt hátíðarræðu. Yfir 250 manns voru mættu til kirkju og veislukaffi á eftir.

Fyrirlestur var haldinn á netinu um „Meðvirkni og sorg“ þar sem sr Díana Ósk fjallaði um sorg í samhengi f lókinna samskipta.

Forseti Íslands kom í heimsókn í október. Hann þáði hádegisverð í Ólafíustofu, Hjörleifur Valsson lék á fiðlu og tækifæri gafst til að eiga uppbyggilegar og góðar samræður um starf og hlutverk kirkjunnar í samfélagi Íslendinga í Noregi.

Breytingar á Ólafíustofu voru kláraðar. Milliveggur tekinn niður þannig að aðalrými Ólafíustofu er stærra og býður nú upp á notalegt sófahorn með bókahillum sem hýsa barnabókasafnið Lóuna.

Lokaorð Þegar litið er yfir árið 2023 sést vel að árið var ríkt af viðburðum og stútfullt af góðum upplifunum. Fyrir það fyrsta þá höfum sett okkur það markmið að byggja upp safnaðarstarf úti á landi og þegar við horfum yfir liðið ár sjáum við að okkur miðar vel áfram á þeirri vegferð.

Mæting á viðburði og helgihald hefur verið mjög góð og oftast eru fleiri mættir en við höfum búist við, og á það jafnt við starfið í Osló og úti á landi. Við fögnum að sjálfsögðu alltaf góðri mætingu og hækkandi þátttökutölum þó það sé ekki eini mælikvarðinn á velgengni í kirkjustarfi. Viðburðir, helgihald og samverustundir sem fáir sækja geta verið jafn þýðingarmikil og skipt miklu máli fyrir viðkomandi.

Við höfum haft það sem markmið að eiga í góðri samvinnu í kringum allt starfið okkar. Við höfum unnið markvisst að því að efla og eiga í heiðarlegum og góðum samskiptum við Íslendingafélögin og kórana. Þar erum við líka að sjá afrakstur í góðu samstarfi í kringum viðburðina okkar, bæði þá sem við stöndum fyrir og þá sem við vinnum saman að. Því horfum við fram á veginn, með gleði og tilhlökkun í huganum, vitandi að Guð finnur alltaf færa leið fyrir okkur til að halda áfram að byggja lifandi, eflandi og endurnærandi kirkjustarf.

Mig langar að lokum að þakka af öllu hjarta samstarfsfólki mínu, stjórninni og sjálfboðaliðum, fyrir samstarfið á liðnu ári. Guð blessi elsku ykkur öll og elsku lifandi kirkjuna okkar.

Inga Harðardóttir, sóknarprestur

Skýrslu sóknarprests má lesa í heild sinni í viðhengi.

6. Skýrsla Ólafíusjóðs.

Steinunn Þórðardóttir fer með skýrslu sjóðsins.

Stjórn Breytingar urðu á stjórn Ólafíusjóðs árið 2023. Á aðalfundi 2023 komu þær Ingibjörg Jónasdóttir og Ásgerður Ingibjörg Magnúsdóttir nýjar inn í stjórn.

Stjórn Ólafíusjóðs 2023-2024: Steinunn Þórðardóttir formaður Margrét Gunnarsdóttir varaformaður Ágústa María Arnardóttir Figved gjaldkeri

Ingibjörg Jónasdóttir ritari Ásgerður Ingibjörg Magnúsdóttir meðstjórnandi Prestur Íslensku kirkjunnar í Noregi, sr Inga Harðardóttir, situr stjórnarfundi og vinnur fyrir sjóðinn.

Stjórnin fundaði með formlegum hætti reglulega yfir vetrartímann.

Umsóknir 8 umsóknir um neyðarstyrki bárust, þar af voru 6 umsóknir samþykktar - alls 49500 NOK. Einni umsókn var vísað til kirkjunnar til úrlausnar og einum umsækjanda var boðið að fá matarkort. 16 umsóknir bárust um jólastyrki sem allar voru samþykktar. Alls 104500 NOK. Samtals veittir styrkir 154000 NOK. 5 aðilar fengu afhent matarkort. Alls 9500 NOK sem er greitt af kirkjunni.

Fjárhagsstaðan Í upphafi árs 2023 var staðan 82.368,64 NOK Tekjur sem komu inn voru 130.000 NOK styrkur frá kirkjunni, og 19.364,02 NOK í gjafir og söfnun. Útgreiddir styrkir NOK 154.000. Staðan í lok árs 77.615,16 NOK

Fjáröflun Stjórn vann góða undirbúningsvinnu sem snýr að því að afla styrkja frá fyrirtækjum. Því verður fylgt eftir á þessu ári. Ólafíuhátíð var haldin í Sagene kirkju þann 22. október 2023 og var með veglegasta móti. Mæting fór fram úr björtustu vonum, yfir 200 manns. Tekið var á móti frjálsum framlögum í Ólafíusjóð auk þess sem sr Inga Harðardóttir sagði frá lífi Ólafíu og hennar merkilega lífshlaupi. Einar Tryggvi Traustason hélt happdrætti í hangikjötsveislu Gæðastunda í Ólafíustofu í desember þar sem miðverð rann óskert í Ólafíusjóð.

Við þökkum öllum sem hafa gefið af sér, bæði með fjármunum, tíma og sjálfboðavinnu. Guð launi ykkur örlæti og gjafmildi.

Skýrslu Ólafíusjóðs má lesa í heild sinni í viðhengi.

Umræður skýrslnanna.

Fundarstjóri opnar fyrir umræður um skýrslur stjórnar, sóknarprests og Ólafíusjóðs.

Þórhallur Guðmundsson biður um orðið og vill að sýndur verði á skjá tölvupóstur sem hann hafi sent stjórn fyrr sama dag.. Það er ekki hægt að verða við því. Hann spyr um fjölda meðlima í kirkjunni, og hvort að hafi verið unnið í því að krafti að fá inn fleiri á meðlimaskrá. Eins vill hann fá upplýsingar um misræmi fjölda þess sem sótt var um sem styrk til ríkisins og fjölda sem ríkið veitti til kirkjunnar.

Hjörleifur segir að við öll tækifæri sé reynt að hvetja fólk til að skrá sig og biðja um að láta það berast að hægt sé að skrá sig. Eins sé það þannig að umtalsvert margir eru tvískráðir í söfnuði og það skýri að miklu leiti mismuninn.

Ekki var annað tengt skýrslunum til umræðu.

7. Fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram

Katla Sveinbjörnsdóttir og Berglind Gunnarsdóttir kynna ársreikninga og fjárhagsáætlun saman.

Ársreikninga og fjárhagsáætlun í má lesa í heild sinni í viðhengi.

Umræður um fjárhagsáætlun og ársreikninga.

Þórhallur biður um orðið og vill benda á misræmi í tekjum og útgjöldum. Tekjur aukast um hálfa miljón og kostnaður eykst um eina miljón. Berglind svarar því að gert sé ráð fyrir auknu starfi og að allur kostnaður hafi aukist verulega.

Þórhallur vill koma með þrjár tillögur varðandi fjárhagsáætlunina, en fundarstjóri bendir honum á að allar tillögur, líka fyrir þennan lið, þurfi að berast fyrir 1. mars. Einnig bendir hann á að Þórhallur eigi mögueika á að taka þetta upp undir liðnum Önnur mál.

- Kaffihlé í 10 mín

 

Fundarstjóri heldur áfram fundi og minnir á að orðið er laust um reikninga og fjárhagsáætlun. Enginn í sal hefur beðið um orðið. Þórhallur kemur þá með spurningu um afskriftir og Hjörleifur bendir á að það sé ekki fyrir árið 2023 heldur 2024.

8. Kosning í safnaðarstjórn og varastjórn

Fyrrum formaður Elín Soffía Pilkington og Katla Sveinbjörnsdóttir núverandi gjaldkeri hafa setið í stjórn í 4 ár og er þakkað sérstaklega vel fyrir störf sín. Elín Soffía gefur ekki kost á sér áfram til setu í stjórn en Katla Sveinbjörnsdóttir hefur áhuga á áframhaldandi stjórnarstörfum. Kolbrún Rut Ragnarsdóttir varamaður í stjórn hefur setið í 4 ár og er þakkað vel fyrir sín störf. Kolbrún hefur áhuga á áframhaldandi stjórnarstörfum. Þuríður Drífa Sigurðardóttir hefur ákveðið að segja sæti sínu í varastjórn lausu. Það eru því laus tvö sæti í aðalstjórn og tvö í varastjórn.

Steinunn Þórðardóttir frá valnefnd kynnir hvernig þau hafi unnið fyrir aðalfundinn. Katla Sveinbjörnsdóttir gefur kost á sér áfram í aðalstjórn, sem og Sigrún Helga Hartmann, sem setið hefur í varastjórn. Í varastjórn bjóða sig fram Jenný Rut Sigurgeirsdóttir, Kolbrún Rut Ragnarsdóttir og Þórður Reynisson. Þuríður Drífa Sigurðardóttir hefur dregið sig ú t úr varastjórn.

Ekki komu fleiri tillögur og því skoðast það sem þau séu kosin í þessar stjórnir.

Ekki þarf að kjósa í stjórn Ólafíusjóðs. Steinunn Þórðardóttir er tilnefnd áfram sem fulltrúi kirkjunnar.

9. Tillögur.

Tillögur stjórnar til aðalfundar Íslensku kirkjunnar í Noregi 2024

Fundarstjóri kynnir tvær tillögur sem komið hafa inn. Annarsvegar er það tillögur um þóknun til stjórnarmanna og hins vegar um lagabreytingar á lögum og reglum kirkjunnar:

1. Þóknun fyrir stjórnarsetu fylgi launavísitölu ár hvert.

2. Þóknun stjórnar og varastjórnar fyrir stjórnarsetu eru 1 800 kr fyrir hvern fund. Tímalaun fyrir aðra vinnu eru 350 kr.

Fyrst er tekið fyrir þóknun til stjórnarmanna og að hún fylgi launavísitölu.

Báðar tillögurnar eru samþykktar af fundargestum.

Næst eru teknar fyrir lagabreytingar. Fundarstjóri mun ekki lesa í gegnum öll lögin því þau eru í fundargögnum sem fundargestir hafa fyrir framan sig.

Þórhallur biður um orðið og kemur með breytingartillögu og telur að þurfi að skilgreina fyrstu og aðra grein betur.

Kosið er umtillögu Þórhalls og er hún felld.

Þórhallur kemur einnig með tillögu um breytingu að þriðju grein. Upp kemur að það er einungis það sem er skráð grænt í textanum er til umræðu og ekki er hægt að koma með breytingartillögur því frestur var að senda inn tillögur þann 1. mars. Þórhallur dregur því tillögu sína til baka.

Lagabreytingar eru samþykktar af yfirgnæfandi meirihluta fundargesta.

Tillögur til breytinga á starfsreglum stjórnar Ólafíusjóðs

Stjórn Ólafíusjóðs leggur til eftirfarandi breytingar á Starfsreglum stjórnar Ólafíusjóðs:

Breytingartillaga á 1. grein starfsreglanna er efnislegs eðlis. Greinin fjallar meðal annars um verkefni prestsins í stjórninni. Stjórnin sér ekki ástæðu til þess að prestur skrifi allar fundargerðir og leggur til að greinin verði svohljóðandi: 1.gr. Stjórn samanstendur af fimm einstaklingum, formanni sem skipaður er af stjórn Íslensku Kirkjunnar í Noregi, varaformanni, gjaldkera og tveimur meðstjórnendum. Prestur er svo starfsmaður sjóðsins. Ákveðið er á hverjum fundi hver skrifi fundargerð.

Breytingartillaga á 4. grein starfsreglanna varðar orðalag greinarinnar. Stjórnin leggur til að orðinu ákveður verði skipt út med samþykkir greinin verði svohljóðandi: 4. gr. Aðalfundur hvers árs samþykkir starfsreglur og úthlutunarreglur.

Breytingartillaga á 8. grein starfsreglanna varðar inntak reglanna. Greinin snýr að úthlutun og sagt er til um inntak greinarinnar í Úthlutunarreglum Ólafíusjóðs. Til að hafa skýran greinarmun á úthlutunarreglum og starfsreglum leggur stjórnin til að greinin verði svohljóðandi: 8.gr. Við úthlutun styrks er farið eftir Úthlutunarreglum Ólafíusjóðs.

Breytingartillaga á 10. grein starfsregla Ólafíusjóðs varðar orðalag. Í greininni er notað orðið reikningar. Við afgreiðslu umsókna er umsóknin lögð fram ásamt upplýsingum um mögulegar fyrri úthlutanir, engir reikningar fylgja með umsóknum. Því leggur stjórn fram að greinin verði svohljóðandi: 10. gr. Allar umsóknir sem koma inn og þær sem eru afgreiddar skal leggja fram á næsta stjórnarfundi til kynningar. Í viðbót við þessar breytingar leggur stjórnin til að nýtt nafn Íslensku kirkjunnar verði fellt inn í allar þær greinar og lög sem gamla nafnið, Íslenski söfnuðurinn í Noregi, kemur fram í.

Lagabreytingar fyrir Ólafíusjóð eru samþykktar með yfirgnæfandi meirihluta.

10. Kosning í kjörnefnd og aðrar nefndir

Kosning til kjörnefndar: Steinunn Þórðardóttir, Sturla Jónsson og Margrét Gunnarsdóttir bjóða sig fram áfram, og er það samþykkt.

11. Önnur mál

Þórhallur Guðmundsson biður um orðið og vill þakka fyrir hversu mikil gróska er í söfnuðinum og nefnir sérstaklega Pálínu fyrir að láta það vera sýnilegt á samfélagsmiðlum og Rebekku fyrir gæði í barna og ungmennastarfi. Hann nefnir einnig Ingu sem hann telur jákvæða og vera vel starfi sínu vaxin.

Ekki eru fleiri mál

Fundarstjóri þakkar fyrir skilvirkan fund. Hjörleifur Valsson þakkar fundarstjóra og fundarritara sem og varamönnum í stjórn sem verið hafa fjögur ár.

Hann þakkar einnig starfskonum safnaðarins fyrir vel unnin störf og Íslendingafélaginu fyrir gott samstarf og að lokum kjörnefndinni.

Allir þessir aðilar fá afhent blóm sem þakkarvott.

Fundi slitið 17:05

Jónína Margrét Arnórsdóttir, fundarritari

Powered by Cornerstone