Aðalfundur Íslensku kirkjunnar í Noregi og Ólafíusjóðs

Aðalfundur Íslensku kirkjunnar í Noregi  og Ólafíusjóðs

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Íslenska kirkjan í Noregi boðar til aðalfundar sunnudaginn 15. mars, 2026, Staðsetning og tímasetning er ekki 100% ennþá en dagsetningin er klár, og endilega takið daginn frá!

Fundurinn hefst eftir guðsþjónustu og kirkjukaffi sem að sjálfsögðu verður á sínum stað.

Samhliða aðalfundi verður aðalfundur Ólafíusjóðs haldinn

Kjörnefnd óskar eftir framboðum í aðalstjórn en eitt sæti eru laust í stjórn.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við kjörnefnd ( kjornefnd@kirkjan.no ) eða sóknarprest Lilju Kristínu Þorsteinsdóttur.

Aðalfundur fer með ákvörðunarvald safnaðarins í málum þeim sem undir fundinn heyra samkvæmt lögum eða lögmætum ákvörðunum.

Aðalfundur er vettvangur starfsskila og reiknisskila af hendi stjórnar safnaðarins og einstakra nefnda á vegum safnaðarins. Þar skulu rædd málefni safnaðarins, þar á meðal þau mál sem lögmælt er að undir fundinn séu borin.

Tillögur til aðalfundar skulu berast safnaðarstjórn fyrir 1. mars ár hvert.

Safnaðarmenn njóta kosningarréttar og kjörgengis á safnaðarfundum þegar þeir eru fullra sextán ára.

Gerist fljótlega
Handavinnuhittingur í Ólafíustofu
Torsdag, august 27, 2026 18:00
Taktu fram prjónana, heklunálina eða annað handverk, nú eða bara kjaftavaðalinn og vertu með okkur í notalegri stemningu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo. Húsið opnar kl 18:00. Léttar veitingar í boði. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Hausthátíð í Trondheim
Lørdag, august 29, 2026 15:00
Laugardaginn 29.ágúst ætlum við að hittast og eiga skemmtilega fjölskyldustund saman við bálið í fallegri náttúru við Pettersenfjære. Hittingurinn er í góðri samvinnu milli Íslendingafélagsins Kjartans og Íslensku kirkjunnar í Noregi. Boðið verður upp á söng við bálið. skemmtilega leiki, brúðuleikhús, pylsupartý og notalega útiveru. Íslendingafélagið verður vel merkt íslenska fánanum og tekur á móti ykkur kl 13:00 á bílastæðinu við Tangenfjære. Frá bílastæðinu við Tangenfjære er gengið eftir stígnum meðfram sjónum í átt að litla nesinu hægra megin. Pettersenfjæra er svæðið alveg yst á nesinu, þar sem stígurinn endar við sjóinn. Frá bílastæðinu tekur bara nokkrar mínútur að ganga þangað. Gönguferðin frá bílastæðinu er afar létt og hentar vel öllum aldri. Ef þið komið seinna þá hafið þið samband við okkur og við leiðbeinum ykkur að svæðinu. Svæðið er einstaklega fallegt, það er Gapahuk á staðnum, borð til að setjast við með frábæra aðstöðu fyrir samveruna. Hlökkum til að sjá ykkur.
Hausthátíð við Sognsvann í Osló
Søndag, august 30, 2026 13:00
Hausthátíð í Oslo Við hittumst á Sognsvann kl 13:00 þann 30. ágúst í huggulegu haustskapi. Haustföndursmiðjur, sunnudagaskóli, útileikjastöðvar, samvera og notalegheit eru þema dagsins. Fullkomin dagur fyrir alla fjölskylduna til að búa til dásamlegar haustminningar saman í góðum félagsskap. Íslendingafélagið í Oslo sér um pylsuveislu fyrir alla þá sem mæta. Við hvetjum ykkur að taka með teppi til þess að sitja á. Við hittumst hjá hliðinu við aðal sjoppuna á Sognsvann. Við verðum með íslensku fánana við upplýsingaskiltin þar. Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll.
Powered by Cornerstone