JÓLASTUÐNINGUR ÓLAFÍUSJÓÐS

❤️ Það má endilega deila þessu áfram svo upplýsingarnar komist til þeirra sem þurfa á því að halda fyrir hátíðarnar. ❤️

JÓLASTUÐNINGUR ÓLAFÍUSJÓÐS

Við minnum á að hægt að sækja um stuðning fyrir jólin hjá Ólafíusjóðnum.

Veittir verða jólagjafastyrkir fyrir börnin og matarstyrkir bæði handa fjölskyldum og einstaklingum.

Jólagjafastyrkurinn er fyrir fjölskyldur sem sjá ekki fram á að hafa efni á jólagjöfum fyrir börnin sín þessi jólin og er veittur styrkur fyrir hvert barn.

Jólamatarstyrkurinn er bæði fyrir fjölskyldur og einstaklinga, og hægt er að sækja um hann samhliða jólagjafastyrknum eða einan og sér.

Sótt er um jólastuðning á heimasíðu Ólafíusjóðs https://www.kirkjan.no/olafiusjodur/ og umsóknarfrestur er til 2. desember.

Styrkir verða afhentir eins fljótt og auðið er eftir að farið hefur verið yfir umsóknirnar.

Nánari upplýsingar má fá hjá sr Lilju Kristínu , tölvupósturinn hennar er lilja@kirkjan.no

Gerist fljótlega
Aðventuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi 2026
Søndag, november 22, 2026 15:00
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00. Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning. Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna. Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið. Hlý og kærleiksrík aðventustemning. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Jólahátíð í Sandefjord
Søndag, november 29, 2026 14:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Powered by Cornerstone