Þá erum við byrjuð að telja niður í dásamlegu og hátíðlegu Aðventuhátíðina okkar, bara örfáir dagar í gleðina.
Hvetjum þig til þess að komast í jólaskapið með okkur og hlusta á tónlistarfólkið okkar flytja hugljúf og falleg jólalög.
Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning.
Tónlistarfólkið Inga Þyri Þórðardóttir (söngur), Benjamín Gísli Einarsson (píanó), Bjarni Már Ingólfsson (gítar), Laffí vokalensemble, Ískórinn og Litla Laffí flytja hugljúfa tónlist.
Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju.
@vignir.helgason og @zsolten
Sjáumst!
