Bókakynning í Gæðastundum

Halla Hrönn Guðmundsdóttir var með bókakynningu í Gæðastundum í gær.

Halla fór yfir krefjandi tíma í sínu lífi, las upp úr ljóðabók Siggu Soffíu sem Halla og systur hennar þýddu yfir á norsku og talaði um hvernig dansverkið upp úr bókinni hafði ótrúlega sterk áhrif á þær systur.

Við þökkum Höllu kærlega fyrir einlæga stund í Ólafíustofu í gær.

Allar upplýsingar um bókina og hvar þið getið nálgast hana finnið þið hér:

https://www.duermenneskelig.no

Bókakynning í Gæðastundum Bókakynning í Gæðastundum Bókakynning í Gæðastundum Bókakynning í Gæðastundum Bókakynning í Gæðastundum
Gerist fljótlega
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Jólahátíð í Sandefjord
Søndag, november 29, 2026 14:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Litlu Jólin / Hangikjötsboð í Ólafíustofu
Torsdag, desember 3, 2026 12:00
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á árleg Litlu Jólin / Hangikjötsboð í Ólafíustofu þann 3. desember kl. 12. Það hefur verið met þátttaka undanfarin ár og þéttsetið. Því er nauðsynlegt að skrá sig svo við séum örugglega með pláss fyrir alla. Það verðum einnig viðburður kl. 17. - sjá hér á síðunni. ÞAÐ ER FULLT KL. 17. Skráningin fer fram hér: https://kirkjan.no/kirkjustarf/gaedastundir-60/litlujolin Fyrir þá sem hafa tök á því að greiða að þá eru verðin eru eftirfarandi: Fullorðnir 250 nkr Eldri börn 100 nkr Yngri börn 50 nkr Börn yngri en tveggja ára greiða ekkert. Hægt er að greiða með Vipps á númerið #32731 eða á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur.
Powered by Cornerstone