Æfing fyrir Aðventuhátíð

Æfing fyrir AÐVENTUHÁTÍÐ 2025 - BØLER KIRKJA Í OSLÓ sem verður haldin hátíðlega þann 23.nóvember kl 14:00 í Bøler kirkju.

Íslendingafélagið í Oslo sér um kaffihlaðborðið sem verður Pálínuboð að vanda.

Fram koma Ískórinn LAFFÍ vokalensemble, barnakórinn Litla Laffí.

Benjamín Gísli og Bjarni Már sjá um undirleik og söngkonan Inga Þyri lætur ljós sitt skína.

Sjáumst sem flest.

Gerist fljótlega
Kvennakvöld Ólafíusjóðs - Konur eru konum bestar!
Torsdag, juni 4, 2026 16:30
Velkomnar á kvennakvöld Ólafíusjóðs 2026! Ólafíusjóður í samstarfi við Sendiráð Íslands í Noregi býður til kvennakvölds í embættisbústaðnum á Aker Brygge! Konur eru konum bestar! Kvennakvöldið er einstakt tækifæri til þess að kynnast öðrum íslenskum konum í Noregi og efla þannig tengslanet sitt í jákvæðu og uppbyggilegu andrúmslofti. Við munum fá til okkar frábæra gesti og í gegnum örsögur fáum við innsýn í líf þeirra og starf hér í Noregi. Auk þess verður sagt frá kvenskörungnum og heimskonunni Ólafíu Jóhannsdóttur, sem er þjóðkunn í Noregi fyrir störf sín í þágu kvenna í byrjun síðustu aldar. Það verða léttar veitingar í boði hússins. Allur ágóði af miðasölu rennur í Ólafíusjóð og auk þess er hægt að leggja fram frjáls framlög. Staður: Sendiráðsbústaðurinn á Aker Brygge, Tímasetning: 4. júní 16.30-19.00. Miðaverð 275 NOK Hlekkur á miðasölu! https://olafiusjodur.hoopla.no/event/1069482756 Rými er takmarkað svo endilega tryggið ykkur miða áður en húsið fyllist! Sjáumst hressar!
Guðsþjónusta og sjómannadagshátíð í Tromsø
Søndag, juni 7, 2026 13:00
Sjómannadagshátíð í Tromsø Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Tromsø þann 6. júní 2026. Dagskráin hefst með ljúfri og líflegri fjölskyldumessu í Grønnåsen kirkju kl 13:00, sem sr Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir. Að guðsþjónustu lokinni verður boðið upp á pokahlaup, andlitsmálningu og skapandi föndurhorn, gleði og góða samveru, og að sjálfsögðu kaffihlaðborð og pylsupartí í samstarfi við Íslendingafélagið Hrafnaflóka. Alvöru íslensk hátíðarstemmning ❤ Kökur og góðgæti mega gjarnan koma með ykkur á sameiginlegt kaffihlaðborð. Pylsur og meðlæti, drykkir og kaffi verða á staðnum í boði kirkjunnar og Hrafnaflóka. Hlökkum til að halda sjómannadaginn hátíðlegan! Verið hjartanlega velkomin!
Ungmennahittingur - Eyjahopp!
Søndag, juni 7, 2026 15:00
Sunnudaginn 7. júní verður ungmennahittingur! Við ætlum að fara í eyjahopp á Oslóarfirðinum⛵️ Mæting er í Ólafíustofu kl 15:00. til að safna hópnum saman og Bergrún og Natalía taka vel á móti öllum! Síðan verður gengið í sameiningu niður að Aker Brygge þar sem við tökum ferjuna yfir í eyjarnar, kirkjan greiðir fargjöldin. Það verða grillaðar pylsur og sykurpúðar, við förum í einhverja skemmtilega leiki og njótum góða veðursins sem er búið að lofa okkur ☀️ Hlökkum til að sjá sem flesta!
Powered by Cornerstone