Aðventuhátíðin 2025 - undirbúningur á fullu

Aðventuhátíðin okkar verður haldin þann 23.nóvember kl 14:00 í Bøler kirkju. Það ríkir mikil spenna fyrir deginum og heyrðum við hljóðið í Ingu Þyri söngkonu sem spilar stórt hlutverk á hátíðinni í ár.

Hver er Inga Þyri ?

Inga Þyri hefur sungið með hljómsveitum og kórum frá því hún var unglingur. Stærsta verkefnið hennar hingað til var án efa 3Raddir&Beatur ævintýrið sem flutti hana til Noregs fyrir 15 árum en síðan hefur hún sungið bakraddir fyrir ýmis þekkt nöfn, bæði hér, á Íslandi og jafnvel víðar. Nú syngur hún aðallega sóló og í Laffí.

Við sendum henni nokkrar spurningar ✨

Gefum Ingu Þyri orðið. 🤝

1. Hvaðan ertu ?

Hjallahverfi í Kópavogi

2. Hvað er uppáhalds hjá þér á þessum tíma ? Ég elska smákökubakstur og að skreyta jólatréð. Svo förum við alltaf í aðfangadagssund þegar við erum á Íslandi. Það er orðin hefð hjá okkur.

3. Uppáhalds jólasveinn ?

Gáttaþefur. Ég tengi svo við svona lyktarperra hahaha

4. Uppáhalds jólalög ?

Yfir fannhvíta jörð og Það snjóar.

5. Siður á aðventunni sem þú heldur fast í ?

Ég hlusta á jólalög og syng hástöfum með gegnum allan nóvember, desember, og hálfan janúar jafnvel. Það er ekki fyrir hvern sem er að búa með mér sko.

Hlökkum til upplifa jólatöfrana með ykkur öllum þann 23.nóvember.

Gerist fljótlega
Handavinnuhittingur í Ólafíustofu
Torsdag, august 27, 2026 18:00
Taktu fram prjónana, heklunálina eða annað handverk, nú eða bara kjaftavaðalinn og vertu með okkur í notalegri stemningu í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo. Húsið opnar kl 18:00. Léttar veitingar í boði. Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!
Hausthátíð í Trondheim
Lørdag, august 29, 2026 15:00
Laugardaginn 29.ágúst ætlum við að hittast og eiga skemmtilega fjölskyldustund saman við bálið í fallegri náttúru við Pettersenfjære. Hittingurinn er í góðri samvinnu milli Íslendingafélagsins Kjartans og Íslensku kirkjunnar í Noregi. Boðið verður upp á söng við bálið. skemmtilega leiki, brúðuleikhús, pylsupartý og notalega útiveru. Íslendingafélagið verður vel merkt íslenska fánanum og tekur á móti ykkur kl 13:00 á bílastæðinu við Tangenfjære. Frá bílastæðinu við Tangenfjære er gengið eftir stígnum meðfram sjónum í átt að litla nesinu hægra megin. Pettersenfjæra er svæðið alveg yst á nesinu, þar sem stígurinn endar við sjóinn. Frá bílastæðinu tekur bara nokkrar mínútur að ganga þangað. Gönguferðin frá bílastæðinu er afar létt og hentar vel öllum aldri. Ef þið komið seinna þá hafið þið samband við okkur og við leiðbeinum ykkur að svæðinu. Svæðið er einstaklega fallegt, það er Gapahuk á staðnum, borð til að setjast við með frábæra aðstöðu fyrir samveruna. Hlökkum til að sjá ykkur.
Hausthátíð við Sognsvann í Osló
Søndag, august 30, 2026 13:00
Hausthátíð í Oslo Við hittumst á Sognsvann kl 13:00 þann 30. ágúst í huggulegu haustskapi. Haustföndursmiðjur, sunnudagaskóli, útileikjastöðvar, samvera og notalegheit eru þema dagsins. Fullkomin dagur fyrir alla fjölskylduna til að búa til dásamlegar haustminningar saman í góðum félagsskap. Íslendingafélagið í Oslo sér um pylsuveislu fyrir alla þá sem mæta. Við hvetjum ykkur að taka með teppi til þess að sitja á. Við hittumst hjá hliðinu við aðal sjoppuna á Sognsvann. Við verðum með íslensku fánana við upplýsingaskiltin þar. Hlökkum mikið til að sjá ykkur öll.
Powered by Cornerstone