Útilegufjör í Knattholmen 2026
Fredag, juni 19, 2026 19:00 - Søndag, juni 21, 2026 12:00
Takið frá helgina 19. - 21.júní fyrir Útilegufjör kirkjunnar árið 2026 í Knattholmen. Við bjóðum upp á dagskrá frá morgni til kvölds þann 20.júní. Fjörið hefur síðustu ár heppnast frábærlega og margir sem hafa skemmt sér stórkostlega. Leikir og fjör fyrir stóra og smáa, hópefli, skapandi smiðjur, fáránleikar, spurningakeppni, brekkusöngur, varðeldur og sykurpúðar á báli, kvöldvaka og hópefli fyrir alla fjölskylduna. Fyrir þá sem vilja vera alla helgina er gott tjaldsvæði nálægt svæðinu og möguleiki á því að panta gistingu innandyra. Knattholmen er staðsett í Sandefjord og er hluti af eyjunni Natholmen. KFUK-KFUM reka glæsilegar sumarbúðir á þessu svæði og aðstæður til fyrirmyndar. Fallegar strendur, möguleikar til þess að veiða, bátaleiga, frísbígólf, klifur, fótboltavöllur, blakvöllur og körfuboltakörfur, góð aðstaða fyrir hlaupahjól og hjól. Það er úr mörgu að velja og dásamlegt að eyða helginni þarna með góðum vinum. Boðið verður upp á kanóa til þess að sigla á vatninu. Ekki verður boðið upp á sameiginlegar máltíðir. Börn eru á ábyrgð sinna forráðamanna. Bátaleigan er á eigin ábyrgð. Ölvun og neysla annarra vímuefna er óheimil. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!