Gæðastundir í Ólafíustofu haust 2026

Gæðastundir í Ólafíustofu

Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12

Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. 

Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir.
Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. 
Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð.
Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum.

Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar.
10. sept
15. okt
12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum.

3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu


Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. 
 

Gerist fljótlega
Krílakaffi í Ólafíustofu
Torsdag, september 3, 2026 11:00
Krílakaffi í Ólafíustofu einn fimmtudag í mánuði. Notaleg stund og ljúf stund fyrir börn og fullorðna þar sem tilvalið er fyrir foreldra og forráðamenn, afa og ömmur, eða aðra sem eru að gæta ungra barna, að koma og spjalla saman, syngja með litlu krílunum og eiga gæðastund í góðu samfélagi. Í Ólafíustofu er ágætis aðstaða fyrir krílin, skiptiborð, matarstólar, stórt leikteppi, leikföng og bækur en síðast en ekki síst hin krílin sem er svo gaman að hitta. ( ...svo erum við líka með sófa fyrir fullorðna fólkið) Boðið er upp á léttar veitingar og kaffi. Húsið opnar kl. 11. Verið öll hjartanlega velkomin!!
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, september 10, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Hausthátíð í Sandefjord
Søndag, september 13, 2026 14:00
Hausthátíð í Sandefjord. Verið hjartanlega velkomin á hausthátíð í Sandefjord. Þegar laufin eru farin að falla til jarðar og hitastigið úti fer kólnandi. Er notalegt að búa til huggulegar haustminningar saman. Í boði verður söngur og gleði, notalegt spjall og gott samfélag. Messukaffi verður á sínum stað með heitt á könnunni. Þema dagsins er haustið ? Frábær stund til að hitta aðra og rækta tengslin við samlanda.
Powered by Cornerstone