Hausthátíð í Trondheim 2026
Laugardaginn 29.ágúst ætlum við að hittast og eiga skemmtilega fjölskyldustund saman við bálið í fallegri náttúru við Pettersenfjære.
Hittingurinn er í góðri samvinnu milli Íslendingafélagsins Kjartans og Íslensku kirkjunnar í Noregi.
Boðið verður upp á söng við bálið. skemmtilega leiki, brúðuleikhús, pylsupartý og notalega útiveru.
Íslendingafélagið verður vel merkt íslenska fánanum og tekur á móti ykkur kl 13:00 á bílastæðinu við Tangenfjære.
Frá bílastæðinu við Tangenfjære er gengið eftir stígnum meðfram sjónum í átt að litla nesinu hægra megin. Pettersenfjæra er svæðið alveg yst á nesinu, þar sem stígurinn endar við sjóinn. Frá bílastæðinu tekur bara nokkrar mínútur að ganga þangað. Gönguferðin frá bílastæðinu er afar létt og hentar vel öllum aldri.
Ef þið komið seinna þá hafið þið samband við okkur og við leiðbeinum ykkur að svæðinu.
Svæðið er einstaklega fallegt, það er Gapahuk á staðnum, borð til að setjast við með frábæra aðstöðu fyrir samveruna.
Hlökkum til að sjá ykkur.
