Bjarni Már spilar á Aðventuhátíðinni!

Nú styttist í AÐVENTUHÁTÍÐ 2025 - BØLER KIRKJA Í OSLÓ okkar ❤️ Við erum stolt af öllu hæfileikaríka tónlistarfólkinu okkar sem mun láta ljós sitt skína næstkomandi sunnudag.

Kynnumst þeim betur ✨

Hver er Bjarni Már ?

Bjarni Már Ingólfsson er gítarleikari búsettur í Oslo þar sem hann stundar mastersnám sitt í jazztónlist við Norges Musikkhøgskole (NMH). Bjarni Már hefur komið fram á mörgum af helstu jazz tónleikastöðum og viðburðum Íslands og Norðurlanda með mörgu framúrskarandi tónlistarfólki af bæði Íslensku og Norrænu djasssenunni, sem dæmi má nefna: Óskar Guðjónsson, Fredrik Ljungkvist, Lars Jansson, Linnea Jonsson o.fl Í tónlistarnámi sínu hefur hann lært undir leiðsögn nokkurra af fremstu tónlistarmönnum djass og spunatónlistar á heimsvísu á borð við Lage Lund, Steve Cardenas og Skúla Sverrissyni.

Bjarni hefur hlotið lof fyrir gítarleik sínn og tónsmíðar sínar og hefur verið kynntur sem rísandi stjarna innan Íslenska Jazzins. Hann hefur verið hljómsveitarstjóri í ýmsum verkefnum síðan 2015 sem spanna allt frá einleik til hljómsveita af ýmsum stærðum.

Bjarni verður undirleikari ásamt Benjamín Gísla píanóleikara á Aðventuhátíðinni.

Gerist fljótlega
Aðventuhátíð Íslensku kirkjunnar í Noregi 2026
Søndag, november 22, 2026 15:00
AÐVENTUHÁTÍÐ 2026 Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Bøler kirkju, General Ruges vei 51, 0691 Osló þann 22. nóvember kl 15:00. Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti. Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning. Tónlistarfólkið okkar Jónína Aradóttir, Benjamín Gísli Einarsson og LAFFÍ vokalensemble flytja fyrir okkur hugljúfa tónlist og syngja okkur inn í aðventuna. Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um kaffi í safnaðarheimili í Bøler kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann. Við hvetjum ykkur ef þið hafið tök á því að taka með köku á borðið. Hlý og kærleiksrík aðventustemning. Við hlökkum til að sjá ykkur öll!
Jólahátíð í Kristiansand
Lørdag, november 28, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í suður Noregi, býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 28.nóvember í Hellemyr kirkju í Kristiansand. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 13 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá sem flesta og verið hjartanlega velkomin!
Jólahátíð í Sandefjord
Søndag, november 29, 2026 14:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Íslendingafélagið í Sandefjord, býður alla velkomna á Jólahátíð sunnudaginn 29.november í Sandar menighet í Sandefjord. Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi. Jólahátíðin hefst kl. 14 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna í Sandar menighet, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu. Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð. Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka. Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!
Powered by Cornerstone