Handavinnuhittingar í Ólafíustofu Haust 2026

Handavinnuhittingur í Ólafíustofu

 Taktu fram prjónana, heklunálina eða annað handverk, nú eða bara kjaftavaðalinn. Við tökum alltaf vel á móti nýjum andlitum og förum reglulega kynningarhring og forvitnumst um handavinnuna hjá hvort öðru og leggjum mikið upp úr því að sem flestum líði vel og að það sé notaleg stemning. Komdu og vertu með okkur í Ólafíustofu, Pilestredet Park 20, 0176 Oslo.


Húsið opnar kl 18:00.
Léttar veitingar í boði.
Við hlökkum mikið til að sjá ykkur!

Gerist fljótlega
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, oktober 15, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Hausthátíð í Bergen
Lørdag, oktober 17, 2026 12:30
Hausthátíð í Bergen. Verið hjartanlega velkomin á hausthátíð í Bergen. Þegar laufin eru farin að falla til jarðar og hitastigið úti fer kólnandi. Er notalegt að búa til huggulegar haustminningar saman. Í boði verður söngur og gleði sem Sönghópurinn Björgvin heldur utan um, notalegt spjall og gott samfélag. Það verður heitt á könnunni og smá kruðerí með því. Þema dagsins er haustið ? Frábær stund til að hitta aðra og rækta tengslin við samlanda. Staðsetning: Bergen inkluderingssenter Landåssvingen 15, 5096 Bergen, Norge
Hausthátíð við Stokkavatnið í Stavanger
Søndag, oktober 18, 2026 13:00
Íslenska kirkjan í Noregi og Íslendingafélagið verða með hausthátíð í Stavanger sunnudaginn 18. október kl 13:00. Útileikir, gleði, grillaðar pylsur og fjölskyldufjör!! Þátttaka er ykkur að kostnaðarlausu, best er að leggja bílunum við Speidermarka parkering. Ef þið komið með almenningssamgöngum er best að fara út á stoppustöðinni við Krossbergveien. Öll hjartanlega velkomin!
Powered by Cornerstone