Nýársbrenna og brekkusöngur

Nýarsbrenna og brekkusöngur í Þrándheimi

Þann 11.janúar 2026 ætlum við að fagna nýju ári saman með brennu og brekkusöng í BUL hyttu i Lian.

Við hvetjum ykkur til að taka með ykkur heitt kakó eða kaffi á brúsa til þess að drekka yfir heitum ylnum af bálinu . Íslendingafélagið stendur fyrir allskonar veitingum sem hægt er að elda, grilla eða baka á bálinu. 

Pálína Ósk Hraundal menningarfulltrúi ætlar að sýna okkur hvernig hægt er að baka muffins í appelsínuformi yfir bálinu með einföldum hætti. Einnig sýnir hún okkur skemmtilegar hugmyndir af náttúruföndri með krökkunum upp úr bókinni Útilifsbók fjölskyldunnar. 

Rebekka Ingibjartsdóttir kórstjóri Laffí kemur og mun stýra samsöng. Sungin verða skemmtileg íslensk lög.

Hægt er að taka sporvagn, koma á bíl eða jafnvel koma á gönguskíðum að hyttunni. Setjum mynd á viðburðinn með skýrum leiðbeiningum að leiðum.
Það er góð brekka við hyttuna svo hægt er að taka skíðin eða snjóþotuna með. 

Viðburðurinn er ókeypis og í samvinnu við Íslendingafélagið Kjartan í Þrándheimi.

Hlökkum til að sjá ykkur!

 

Staðsetning: Lianvegen 116B, 7024 Lian, Norge

Nýársbrenna og brekkusöngur
Gerist fljótlega
Ungmennahittingur í Ólafíustofu
Søndag, oktober 11, 2026 16:00
Við ætlum að hittast í Ólafíustofu ( Pilestredet park 20, 0176 Osló ) sunnudaginn 11.október kl 16:00 og baka saman pizzur! Þar verður góð tónlist, góður félagsskapur og ljúffengar pizzur. Frábær staður til að kynnast nýjum krökkum, tala íslensku og brjóta upp vikuna? Hvað er uppáhalds áleggið þitt????? Það er sjálfsagt að fylgja krökkunum til og frá lestarstöð. Sendið Bergrúnu póst ef þið viljið skipuleggja það til bergrun@kirkjan.no. Einnig pössum við vel upp á að taka vel á móti öllum. Þannig ekki hika við að mæta þó þú sért ein/einn/eitt. Hlökkum til að sjá ykkur!
Gæðastundir í Ólafíustofu
Torsdag, oktober 15, 2026 12:00
Gæðastundir í Ólafíustofu kl. 12 Verið öll hjartanlega velkomin í Gæðastundir í Ólafíustofu, Pilestredet park 20, 0176 Oslo. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Við byrjum yfirleitt á léttum hádegisverði og svo kaffi á eftir. Stundum fáum við heimsóknir með skemmtilega fyrirlestra og hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, tónleika, fjöldasöng með undirleik og stundum skellum við okkur í gönguferð. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi. Við leggjum okkur fram við að taka vel á móti hverjum og einum. Gæðastundir í haust verða eftirfarandi dagsetningar. 10. sept 15. okt 12. nóv - heimsókn frá nýju sendiherrahjónunum. 3. des verða svo Litlu Jólin í Ólafíustofu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Hausthátíð í Bergen
Lørdag, oktober 17, 2026 12:30
Hausthátíð í Bergen. Verið hjartanlega velkomin á hausthátíð í Bergen. Þegar laufin eru farin að falla til jarðar og hitastigið úti fer kólnandi. Er notalegt að búa til huggulegar haustminningar saman. Í boði verður söngur og gleði sem Sönghópurinn Björgvin heldur utan um, notalegt spjall og gott samfélag. Það verður heitt á könnunni og smá kruðerí með því. Þema dagsins er haustið ? Frábær stund til að hitta aðra og rækta tengslin við samlanda. Staðsetning: Bergen inkluderingssenter Landåssvingen 15, 5096 Bergen, Norge
Powered by Cornerstone